Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Besta karla - Neðri hluti
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
0 - 0
FH
FH
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Fyrir leik
Molar af Hlíðarenda - Halldór með augastað á nokkrum Blikum þegar hann tekur við
Valur
Halldór Árnason vill endurnýja kynnin við Höskuld Gunnlaugsson, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Inga Kristinsson og Viktor Karl Einarsson. Þá er Kristinn Steindórsson sömuleiðis orðaður við félagið en hann er að yfirgefa Breiðablik.

Valur hefur mikinn áhuga á því að fá Sigurð Bjart Hallsson frá Spáni en ólíklegt þykir að hann haldi heim til Íslands í vetur.

Aron Snær Ingason var búinn að ná samkomulagi við Val áður en hann skrifaði undir nýjan samning hjá Þrótti.

Valur nýtti sér ákvæði í samningi Tuma Fannars Gunnarssonar við Fylki sem hægt var að nýta þar sem Fylkir komst ekki upp í Bestu deildina. Kaupverðið er því ekki talið hátt.

Dagur Orri Garðarsson er áfram á blaði hjá Zilina og Fredericia og líkur á að hann fari erlendis í næsta glugga.

Valur er á meðal liða sem hafa áhuga á Daða Berg Jónssyni, Viðari Ara Jónssyni og Bjarti Bjarma Barkarsyni.

Hólmar Örn Eyjólfsson er samningslaus eftir tímabil og gæti lagt skóna á hilluna.

Albin Skoglund og Myles Veldman eru með lausan samning við Val en líklegt þykir að Skoglund verði áfram. Veldman verður að öllum líkindum ekki áfram hjá Val en gæti fengið annan samning á Íslandi. Markus Nakkim er sömuleiðis að renna út af samningi og gæti yfirgefið félagið.

Jóhann Árni Gunnarsson og Örvar Eggertsson, leikmenn Stjörnunnar, eru báðir orðaðir við Val og reyndi Valur að kaupa Örvar undir lok gluggans.

Hlynur Freyr Karlsson er á láni hjá Breiðabliki frá Brommapojkarna. Saminngur hans við sænska félagið rennur út í vetur og búist er við því að bæði Valur og Breiðablik reyni að festa kaupa á honum.

Ómar Björn Stefánsson (ÍA) er á óskalista Vals og reyndi félagið að kaupa hann í sumar. Valsmenn hafa einnig áhuga á Freysteini Guðnasyni (Njarðvík) og Jakobi Ocares Kristjánssyni (Þróttur).

Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV) er á blaði hjá Val, en hann þekkir vel til á Hlíðarenda þar sem faðir hans er í stjórn.

Oliver Sigurjónsson verður aðstoðarþjálfari Vals og Haraldur Björnsson markmannsþjálfari. Þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Michael John Kingdon og Matthías Vilhjálmsson voru orðaðir við aðstoðarþjálfarastöðuna.

Logi Hrafn Róbertsson er orðaður við heimkomu frá Svíþjóð og gæti hann snúið aftur í FH en Valur hefur sýnt mikinn áhuga á honum í gegnum tíðina.

Valur hefur mikinn áhuga á Eysteini Rúnarssyni, leikmanni Grindavíkur, og er félagið í baráttu við Fram um leikmanninn.

Bjarni Þór Viðarsson er orðaður við starf yfirmanns fótboltamála hjá Val eftir að Gareth Owen hætti störfum.

Fyrir leik
Frederik Schram framlengir til 2029
Frederik Schram, markvörður Vals, hefur framlengt samning sinn til 2029 en samningur hans átti að renna út eftir næsta tímabil.

Fyrir leik
Góðar fréttir fyrir Val
Í slúðurpakkanum sem birtist í gær segir að Valur hafi nýtt sér ákvæði í samningi Tuma sem varð virkt þar sem Fylkir komst ekki upp í Bestu deildina. Kaupverðið er því ekki talið hátt.

Fyrir leik
FH reyndi að fá Karl Ágúst
FH lagði fram tilboð í Karl Ágúst Karlsson en HK hafnaði tilboðinu. Við sögðum frá tilboðinu í risastóra slúðurpakkanum sem birtur var í gær og Fótbolti.net hefur fengið staðfest að tilboði FH var hafnað.

Fyrir leik
Twana er á flautunni
Twana Khalid Ahmed er aðaldómari. Honum til aðstoðar eru Ragnar Þór Bender og Ronnarong Wongmahadthai.

Elías Ingi Árnason er fjórði dómari og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er eftirlitsmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin heilsar á ný!
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá N1-vellinum. Í dag eigast Valur og FH við í Bestu deild karla. Flautað verður til leiks á slaginu 14:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.