Fotbolti.net
@fotboltinetBjörn Steinar Brynjólfsson
Pepsi-deild karla
Grindavíkurvöllur
Skýjað og vindur
Grindavík
Grindavík
1 - 2
Fram
Fram
0 - 125' Orri GunnarssonMagnús Björgvinsson 67'1 - 11 - 278' Hlynur Atli Magnússon
Dómari: Kristinn Jakobsson
Myndir: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
0. mín
Komið sæl og blessuð og verið velkominn á leik Grindavíkur og Fram í næst síðasta leik sumarsins.
0. mín
Það er hægt að segja að þetta sé leikur uppá líf og dauða því held ég því fram að það lið sem að vinnur þennan leik heldur sér uppi í Pepsi deildinni að ári.
0. mín
Bæði lið eru að hita upp. Maður sá hérna áður en að leikmenn fóru að hita upp að þjálfarar beggja liða voru að líta á aðstæður og ræða sín á milli.
0. mín
Haukur Ingi Guðnason er í fyrsta skiptið í byrjunarliðinu hjá Grindavík frá því að hann kom til liðs við þá í sumar.
0. mín
Leikmenn eru farnir inní klefa og fer að styttast í rosalegan slag milli þessa liða.
0. mín
Fólk er farið að flykkjast inná völlinn og lýtur nú út fyrir að það sé verið að fara nýta þessu frábæru stúku sem er hér í Grindavík.
0. mín
Liðin eru að labba á völlinn og það er alvöru stemmning hjá stuðningsmönnum Grindavíkur.
1. mín
Leikurinn er hafinn og eru það Framarar sem að byrja með boltann.
6. mín
Baráttukveðjur frá Thorbergi Einarssyni Rokklingi beint frá Vopnafirði um von að Grindavík taki þetta.
14. mín
Lítið að gerast í augnablikinu en heimamenn eru meira með boltann.
24. mín
Daði Guðmundsson tók aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig en boltinn fór yfir
Fram
25. mín
MAAAARK!

Orri Gunnarsson

Orri Gunnarsson var að koma Frömurum yfir eftir að heimamenn náðu ekki að hreinsa boltann út. Orri Gunnarsson mundaði boltann og nelgdi lágum bolta í vinstra hornið.
30. mín
Jóhann Helgason átti flott skot fyrir utan teig en Ögmundur Kristinsson varði vel en missti boltann aðeins frá sér en náði honum aftur.
32. mín
Framarar voru næstum búnir að bæta við öðru marki þegar að Samuel Hewson skallaði boltann eftir aukaspyrnu en Óskar Pétursson varði meistaralega í markinu.
36. mín
Alecander Magnússon var kominn í gott færi en Framarar náðu að hreinsa í horn. Það var mikið klafs inní teig eftir hornspyrnuna en Ólafur Örn Bjarnason skaut en Ögmundur greip boltann.
Grindavík
38. mín
Gult spjald

Ólafur Örn Bjarnason

Ólafur fékk gult fyrir að fella Samuel Hewson sem að var kominn á fulla ferð en Ólafur felldi hann og uppskar gult.
41. mín
Alexander Magnússon var með skot hægra meginn inní vítateig en boltinn fór í hliðarnetið. Stuttu síðar átti Scott Ramsay skot rétt fyrir utan vítateig en Ögmundur varði.
45. mín
Alexander Magnússon átti flotta fyrirgjöf sem að Magnús Björgvinsson skallaði en virðist hafa farið í varnarmann og í horn sem að ekkert varð úr.
45. mín
Það er kominn hálfleikur hér í Grindavík
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn og eru það heimamenn sem að byrja með boltann og eru með vindinn í bakið.
50. mín
Orri Gunnarsson hefur eitthvað slasast og er borin útaf og er verið að hliðra að honum fyrir aftan mark Framara.
Fram
51. mín
InnAndri Júlíusson
ÚtOrri Gunnarsson
Markaskorarinn Orri Gunnarsson er farinn útaf vegna meiðsla.
Grindavík
55. mín
InnBjarni Þórarinn Hallfreðsson
ÚtStefán Þór Pálsson
57. mín
Óli Baldur Bjarnason með skalla sem leit út fyrir að hann væri á leið í samskeytin en Ögmundur Kristinsson varði glæsilega í horn sem ekkert varð úr.
58. mín
Einhver töf eru á leiknum þar sem að Ögmundur virðist hafa fengið högg á höfuðið og er verið að hliðra að honum og akkurat í þessu kom þessi svakalega rigning með og eru leikmenn að hlaupa um völlinn til þess að halda sér hita.
62. mín
Orri Freyr Hjaltalín með sendingu inní teig boltinn lenti í blautu grasinu og þeyttist áfram og boltinn fór rétt framhjá. Andri Júlíusson átti skot þá hinu megin en fór rétt framhjá. Jósef Kristinn Jósefsson var sloppinn í gegn en Ögmundur Kristinsson lokaði vel á hann og varði.
Grindavík
67. mín
MAAAARK!

Magnús Björgvinsson

Magnús var að skora algjörlega uppá sínar eigin spýtur. Magnús fékk boltann rétt fyrir utan teig tók eina snertingu og smellti honum í vinstra hornið, Ögmundur átti ekki sjéns í þennan bolta.
Fram
73. mín
Gult spjald

Alan Lowing

75. mín
Óskar Pétursson er búinn að verja svakaleg tvívegis og þá er ég að tala um að hann sé búinn að loka markinu. Andri Júlíusson var kominnn einn á móti Óskari en hann varði glæsilega svo átti Samuel Tillen skot en Óskar varði aftur glæsilega.
Fram
78. mín
MAAAARK!

Hlynur Atli Magnússon

Hlynur var að skora eftir hornspyrnu frá Samuel Tillen
Grindavík
81. mín
InnRay Anthony Jónsson
ÚtAlexander Magnússon
82. mín
Jamie McCunnie var átti fínt skot langt utan af velli en beint á Ögmund í markinu.
Grindavík
86. mín
Gult spjald

Orri Freyr Hjaltalín

90. mín
Steven Lennon átti flotta fyrirgjöf inn í teig sem að Andri Júlíusson skaut rétt yfir.
Grindavík
90. mín
Gult spjald

Óli Baldur Bjarnason

90. mín
Leik lokið hér í Grindavík þar sem að Framarar eru komnir uppúr fallsætinu. Umfjöllun og viðtöl koma síðar í kvöld. Takk fyrir í kvöld.
Fram
90. mín
InnKristján Hauksson
ÚtDaði Guðmundsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.