0. mín
Hér verður bein textalýsing frá leik FH og ÍBV í 21. umferð Pepsi-deildar karla. Byrjunarliðin eru klár hér til hægri og vinstri.
Við minnum á að valdar færslur af samskiptavefnum Twitter gætu ratað hingað inn. Notið #fotbolti svo eftir þeim sé tekið.
0. mín
Yngvi Borgþórsson kemur í miðvörðinn hjá ÍBV fyrir Brynjar Gauta sem er í banni og Guðmundur Þórarinsson kemur inn fyrir Þórarinn Inga sem er einnig í banni.
0. mín
Bæði þessi lið verða að treysta á að KR misstígi sig í dag til að eiga möguleika í lokaumferðinni á að verða Íslandsmeistari. KR er hinsvegar með 8 fingur á bikarnum!
0. mín
Leikmenn eru farnir að týnast til búningsherbergja. Hvað gerir Tryggvi Guðmundsson gegn sínum gömlu félögum. Honum vantar eitt mark til að slá markametið!
0. mín
Varamannabekkur Eyjamanna er ekki skipaður neinum stórstjörnum hér í dag. Þórarinn og Brynjar Gauti eru í banni og liðið missti Kelvin Mello og Eið Aron í sumar. Hópurinn er þunnskipaður í Eyjum og í raun kraftaverk að Heimir Hallgrímsson hafi haldið liðinu í þessari toppbaráttu í allt sumar.
Varamannabekkur FH er hinsvegar skipaður afar frambærilegum leikmönnum og breiddin miklu mun meiri í Krikanum!
0. mín
Leikurinn er hafinn hérna í Kaplakrka. Yngvi Magnús Borgþórsson er með fyrirliðabandið en ekki Tryggvi Guðmundsson sem kemur gríðarlega á óvart
2. mín
Ian Jeffs nálægt því að koma Eyjamönnum yfir með skalla eftir fyrigjöf frá Arnóri Eyvari.
11. mín
Eyjamenn byrja leikinn að miklu meiri krafti en FH-ingar en eru ekki að ná að reka smiðshöggið á sóknir sínar.
16. mín
Bera þarf Tryggva Guðmundsson af velli hérna, hann er eitthvað mikið vankaður eða slíkt!
17. mín
InnKjartan Guðjónsson
ÚtTryggvi Guðmundsson
Tryggvi er farinn útaf eftir þunngt högg í samstuði við Hákon Atla. Tryggvi fékk mikið lófaklapp þegar hann var borinn útaf en markametið fellur alla vegana ekki í dag.
18. mín
Eyjamenn fá vítaspyrnu en það var Matthías Vilhjálmsson sem braut á Finni Ólafssyni!
19. mín
MAAAARK!
Aaron Spear
Eyjamenn eru komnir yfir en Spear sendi Gunnleif Gunnleifsson í vitlaust horn. Tryggvi Guðmundsson hefði fengið tækifæri til að slá markametið hefði hann verið inná!23. mín
ÞAð er sjúkrabíll sem sækir Tryggva Guðmundsson hérna í Kaplakrikanum, hann er með 6-8 cm skurð á andlitinu! Vonandi verður þessi stórkostlegi leikmaður fljótur að ná sér!
26. mín
FH-ingar eru byrjaðir að auka sóknarþunga sinn en það er alveg ljóst að Eyjamenn munu sakna leiðtoga eins og Tryggvi er.
27. mín
MAAAARK!
Atli Guðnason
Ólafur Páll Snorrason gaf inn fyrir flata vörn Eyjamanna og Atli skoraði snyritlega framhjá Abel í markinu.44. mín
MAAAARK!
Atli Viðar Björnsson
Atli Viðar er búinn að koma FH-ingum yfir, Atli Guðnason sendi inn fyrir vörn Eyjamanna og Atli Viðar vippaði boltanum yfir Abel.45. mín
Það er kominn hálfleikur en FH-ingar leiða 2-1.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn hérna í Kaplakrikanum!
48. mín
Eyjamenn mæta að krafti í síðari hálfleik og eru ekki búnir að gefast upp. Þá er fagnað mikið þegar tilkynnt er að KR og Fylkir séu að gera jafntefli.
58. mín
MAAAARK!
Atli Guðnason
Skondið mark hérna í Kaplakrika, Atli Guðnason með skot langt utan af velli sem silgdi í gegnum pakkann og framhjá Abel sem átti að gera betur. KR-ingar að vinna og stefnir allt í sigurgleði í Vesturbæ í kvöld.61. mín
MAAAARK!
Tonny Mawejje
Eyjamenn ekki lengi að svara og halda í vonina um að ná í eitthvað hérna í Krikanum. Mawejje skoraði með góðu skoti fyrir utan teig.64. mín
InnBjarki Gunnlaugsson
ÚtHákon Atli Hallfreðsson
70. mín
Tony Mawejje var ekki langt frá því að skora annað mark með langskoti. Gulli varðií horn sem Eyjamenn gerðu sér ekki mat úr.
72. mín
MAAAARK!
Atli Viðar Björnsson
Atli Viðar fer langt með að klára þetta fyrir FH. Ásgeir Gunnar gaf fyrir frá hægri og boltinn sveif yfir Abel og Atli var á fjærstönginni og skoraði með skalla.80. mín
Gult spjald
Rasmus Christiansen
84. mín
InnEmil Pálsson
ÚtÓlafur Páll Snorrason
87. mín
Gult spjald
Emil Pálsson
90. mín
Leiknum er lokið með sigri FH og KR-ingar eru meistarar!



