Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24423 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.05.2024, 07:52

Óskar Hrafn hættur með Haugesund (Staðfest)

Norska félagið Haugesund hefur tilkynnt að Óskar Hrafn Þorvaldsson sé ekki lengur þjálfari liðsins. Fram kemur í yfirlýsingu á vef Haugesund að Óskar hafi tilkynnt stjórn félagsins það í gær að hann ætlaði sér að hætta störfum. Ekki kemur fram í tilkynningunni af hverju hann hættir.

FRÉTTIR07.05.2024, 14:30

Thiago Silva í Fluminense (Staðfest)

Brasilíski varnarmaðurinn Thiago Silva hefur skrifað undir samning við Fluminense í heimalandinu. Hann mun enda magnaðan feril sinn þar.

FRÉTTIR03.05.2024, 17:00

Wolves fær Doyle alfarið frá City (Staðfest)

Úlfarnir munu tryggja sér Tommy Doyle, miðjumann Manchester City, þann 1. júlí og borgar aðeins tæplega 5 milljónir punda. Þessi 22 ára miðjumaður hefur spilað 30 leiki fyrir Wolves á lánssamningi á þessu tímabili og félagið hefur nú nýtt sér ákvæði um að fá hann alfarið.

FRÉTTIR03.05.2024, 10:50

Keflavík fékk tvo leikmenn eftir að glugginn lokaði (Staðfest)

Keflavík fékk leikheimild fyrir tvo erlenda leikmenn eftir að félagaskiptaglugginn lokaði. Það eru þær Oliwia Marta Sieminska og Regina Solhaug Fiabema. Oliwia fær félagaskipti frá Póllandi, hún er fædd árið 1998. <i>„Oliwia hefur æft með okkur í einhvern tíma og býr í Keflavík. Við vildum bara fá félagskiptin í gegn og taka síðan stöðuna,"</I> sagði Jonathan Glenn, þjálfari Keflavíkur, við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Fylki í gær.

FRÉTTIR02.05.2024, 16:38

Eiður Jack í Þrótt Vogum (Staðfest)

Eiður Jack Erlingsson hélt í Vogana á lokadegi félagaskiptagluggans í síðustu viku og skrifaði undir lánssamning við Þrótt. Hann kemur frá hinum Þrótturunum, Þrótti Reykjavík. Eiður er fæddur árið 2005 og kom við sögu í tveimur leikjum með Þrótti R. á síðasta tímabili í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR02.05.2024, 13:30

Hinn umtalaði Will Still hættir með Reims (Staðfest)

Englendingurinn Will Still mun ekki stýra Reims í Frakklandi á næsta tímabili en þetta var tilkynnt í dag. Í yfirlýsingu félagsins kemur fram að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða.

FRÉTTIR02.05.2024, 11:00

Rangnick sagði nei við Bayern - Áfram með Austurríki (Staðfest)

Ralf Rangnick hefur staðfest að hann muni vera áfram landsliðsþjálfari Austurríkis. Rangnick, sem er fyrrum stjóri Manchester United, hefur verið í viðræðum við Bayern München. Búist var við því að hann myndi taka við fyrrum Þýskalandsmeisturunum af Thomas Tuchel sem lætur af störfum eftir tímabilið.

FRÉTTIR29.04.2024, 10:20

Thiago Silva yfirgefur Chelsea í sumar (Staðfest)

Thiago Silva varnarmaður Chelsea mun yfirgefa félagið eftir að tímabilinu lýkur. Silva er 39 ára og sendir stuðningsmönnum skilaboð á samfélagsmiðlum félagsins. Síðan hann kom á frjálsri sölu í ágúst 2020 hefur Brasilíumaðurinn spilað 151 leik fyrir félagið, unnið Meistaradeildina, HM félagsliða og Ofurbikar Evrópu. Silva hefur verið orðaður við Fluminense í heimalandi sínu Brasilíu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.