FRÉTTIR10.05.2024, 12:42
Víkingur hefur náð samkomulagi við Gunnar Vatnhamar um framlengingu á samningi hans við félagið. Fyrri samningur átti að renna út eftir yfirstandandi tímabil.
Nýr samningur gildir til þriggja ára, út tímabilið 2027.
FRÉTTIR10.05.2024, 11:19
Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri KSÍ og mun hefja störf þann 1. september. Þangað til mun Jörundur Áki Sveinsson halda áfram að sinna starfinu.
Eysteinn mun láta af störfum hjá Breiðabliki þar sem hann hefur verið framkvæmdastjóri og taka við starfinu í Laugardalnum af Klöru Bjartmarz sem hætti eftir síðasta ársþing sambandsins.
<i>„Það var afar ánægjulegt að sjá hversu margir hæfir einstaklingar sóttu um starf framkvæmdastjóra,"</I> segir Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ í yfirlýsingu sem sjá má í heild hér að neðan.
FRÉTTIR10.05.2024, 07:52
Norska félagið Haugesund hefur tilkynnt að Óskar Hrafn Þorvaldsson sé ekki lengur þjálfari liðsins.
Fram kemur í yfirlýsingu á vef Haugesund að Óskar hafi tilkynnt stjórn félagsins það í gær að hann ætlaði sér að hætta störfum. Ekki kemur fram í tilkynningunni af hverju hann hættir.
FRÉTTIR08.05.2024, 15:00
KFK, Knattspyrnufélag Kópavogs, hefur bætt við sig þremur leikmönnum sem ættu heldur betur að geta hjálpað liðinu í 3. deildinnni í sumar.
FRÉTTIR07.05.2024, 14:30
Brasilíski varnarmaðurinn Thiago Silva hefur skrifað undir samning við Fluminense í heimalandinu.
Hann mun enda magnaðan feril sinn þar.
FRÉTTIR07.05.2024, 07:30
Ruben Amorim, þjálfari Sporting Lisbon í Portúgal, hefur staðfest að hann verði áfram hjá félaginu á næsta tímabili.
FRÉTTIR07.05.2024, 06:00
Króatíski þjálfarinn Nenad Bjelica var í gær rekinn frá þýska félaginu Union Berlín eftir slakan árangur á tímabilinu.
FRÉTTIR06.05.2024, 17:45
David Moyes hættir með West Ham eftir þetta tímabil en félagið sendi frá sér yfirlýsingu fyrir skömmu.
FRÉTTIR05.05.2024, 06:00
Kvennalið Fjölnis hefur fengið bandaríska markvörðinn Katie Sullivan og mun hún spila með liðinu út þetta tímabil.
FRÉTTIR04.05.2024, 18:47
<b>Girona 4 - 2 Barcelona</b>
0-1 Andreas Christensen ('3 )
1-1 Artem Dovbyk ('4 )
1-2 Robert Lewandowski ('45 , víti)
2-2 Portu ('65 )
3-2 Miguel Gutierrez ('67 )
4-2 Portu ('74 )
FRÉTTIR03.05.2024, 17:00
Úlfarnir munu tryggja sér Tommy Doyle, miðjumann Manchester City, þann 1. júlí og borgar aðeins tæplega 5 milljónir punda.
Þessi 22 ára miðjumaður hefur spilað 30 leiki fyrir Wolves á lánssamningi á þessu tímabili og félagið hefur nú nýtt sér ákvæði um að fá hann alfarið.
FRÉTTIR03.05.2024, 10:50
Keflavík fékk leikheimild fyrir tvo erlenda leikmenn eftir að félagaskiptaglugginn lokaði. Það eru þær Oliwia Marta Sieminska og Regina Solhaug Fiabema.
Oliwia fær félagaskipti frá Póllandi, hún er fædd árið 1998. <i>„Oliwia hefur æft með okkur í einhvern tíma og býr í Keflavík. Við vildum bara fá félagskiptin í gegn og taka síðan stöðuna,"</I> sagði Jonathan Glenn, þjálfari Keflavíkur, við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Fylki í gær.
FRÉTTIR02.05.2024, 16:38
Eiður Jack Erlingsson hélt í Vogana á lokadegi félagaskiptagluggans í síðustu viku og skrifaði undir lánssamning við Þrótt. Hann kemur frá hinum Þrótturunum, Þrótti Reykjavík.
Eiður er fæddur árið 2005 og kom við sögu í tveimur leikjum með Þrótti R. á síðasta tímabili í Lengjudeildinni.
FRÉTTIR02.05.2024, 13:30
Englendingurinn Will Still mun ekki stýra Reims í Frakklandi á næsta tímabili en þetta var tilkynnt í dag. Í yfirlýsingu félagsins kemur fram að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða.
FRÉTTIR02.05.2024, 11:00
Ralf Rangnick hefur staðfest að hann muni vera áfram landsliðsþjálfari Austurríkis. Rangnick, sem er fyrrum stjóri Manchester United, hefur verið í viðræðum við Bayern München.
Búist var við því að hann myndi taka við fyrrum Þýskalandsmeisturunum af Thomas Tuchel sem lætur af störfum eftir tímabilið.
FRÉTTIR02.05.2024, 07:30
Magni hefur gengið frá samningum við spænska sóknarmanninn Ibrahim Boulahya El Miri en hann kemur til félagsins frá Spáni.
FRÉTTIR01.05.2024, 21:29
Sigur Borussia Dortmund á Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld gulltryggði Þýskalandi fimmta sætinu í keppnina fyrir næstu leiktíð.
FRÉTTIR29.04.2024, 17:30
Hiti milli manna í Liverpool, slúður úr enska boltanum og Keflavík sló Breiðablik úr leik í Mjólkurbikarnum.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR29.04.2024, 10:20
Thiago Silva varnarmaður Chelsea mun yfirgefa félagið eftir að tímabilinu lýkur. Silva er 39 ára og sendir stuðningsmönnum skilaboð á samfélagsmiðlum félagsins.
Síðan hann kom á frjálsri sölu í ágúst 2020 hefur Brasilíumaðurinn spilað 151 leik fyrir félagið, unnið Meistaradeildina, HM félagsliða og Ofurbikar Evrópu.
Silva hefur verið orðaður við Fluminense í heimalandi sínu Brasilíu.
FRÉTTIR27.04.2024, 16:58
<p>Þrír leikmenn gengu aftur til liðs við Ægi fyrir baráttuna í 2. deild fyrir lok félagaskiptagluggans.</p>