Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25146 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR07.04.2024, 19:10

Nadía Atladóttir í Val (Staðfest)

Nadía Atladóttir hefur samið um að spila með Íslandsmeisturum Vals en þetta tilkynnti bróðir hennnar, Patrik Snær, á FanZone-inu á Hlíðarenda í kvöld.

FRÉTTIR06.04.2024, 11:55

Grótta fær hollenskan miðjumann (Staðfest)

<p>Damian Timan hefur gengið í raðir Gróttu í Lengjudeildinni en þessi 23 ára gamli miðjumaður krotaði undir tveggja ára samning við félagið.</p>

FRÉTTIR06.04.2024, 11:35

George Nunn í HK (Staðfest)

<p>Hinn 22 ára gamli George Nunn er kominn með leikheimild með HK og því mun hann geta tekið þátt í leiknum gegn KA á Akureyri á morgun.</p>

FRÉTTIR05.04.2024, 20:44

Nadía riftir við Víking (Staðfest)

<i>Dr. Football</I> á <i>X</I> vekur athygli á því í kvöld að Nadía Atladóttir hafi rift samningi sínum við Víking en hún var samningsbundin félaginu út tímabilið 2025. Hún staðfesti svo tíðindin í kjölfarið þegar Fótbolti.net spurði út í stöðu mála. Nadía var fyrirliði liðsins á síðasta tímabili þegar það vann Lengjudeildina og varð bikarmeistari.

FRÉTTIR05.04.2024, 20:32

Ísak Snær lánaður til Breiðabliks (Staðfest)

Norska félagið Rosenborg og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um það að Ísak Snær Þorvaldsson fari á láni til Breiðabliks frá norska félaginu og spilar hann því á Íslandi út komandi tímabil. Ísak var seldur frá Breiðabliki til Rosenborg eftir tímabilið 2022 þar sem hann var besti leikmaður Íslandsmótsins og Breiðablik Íslandsmeistari.

FRÉTTIR05.04.2024, 11:50

Grindavík fær spænskan varnarmann (Staðfest)

Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir tímabilið í Lengjudeildinni sem hefst eftir u.þ.b. mánuð því spænski varnarmaðurinn Dennis Nieblas er genginn í raðir félagsins og spilar með liðinu í sumar. Dennis er 33 ára reynslumikill miðvörður sem hefur leikið víða á ferli sínum. Hann lék síðast á Kýpur en lék meðal annars með Víkingi í Götu í Færeyjum árið 2018. Hann hefur einnig leikið í Taílandi, Spáni, Austurríki og í Portúgal á ferli sínum.

FRÉTTIR05.04.2024, 10:09

Breki Baxter í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Þorlák Breka Baxter. Hann mun spila með liðinu í sumar. Hann kemur til Stjörnunnar frá Lecce á Ítalíu en þar á undan lék hann með Selfossi þar sem hann spilaði 23 leiki og skoraði fimm mörk í Lengjudeildinni síðasta sumar. Fótbolti.net greindi frá því fyrir mánuði síðan að Breki væri líklega á leið í Stjörnuna.

FRÉTTIR04.04.2024, 17:35

Orri Hrafn heim í Fylki (Staðfest)

Fylkir og Valur hafa komist að samkomulagi um að Orri Hrafn Kjartansson gangi til liðs við félagið á lánssamningi út tímabilið. Frá þessu greinir Fylkir á samfélagsmiðlum sínum. Orri er 22 ára miðjumaður sem keyptur var til Vals frá Fylki eftir tímabilið 2021. Hann var ekki í leikmannahópi Vals gegn Víkingi á mánudaginn og sagði Arnar Grétarsson við Fótbolta.net að Orri væri líklegast á förum frá félaginu, sem raungerist nú þremur dögum síðar. Orri er samningsbundinn Val út tímabilið 2025. Fylkir varð fyrir áfalli í gær þegar fyrirliði liðsins rifbeinsbrotnaði og spurning hvort að Orri taki hans stöðu á miðsvæðinu í fyrsta leik þegar Fylkir fær KR í heimsókn á sunnudag.

FRÉTTIR04.04.2024, 16:50

Róbert Orri til Kongsvinger (Staðfest)

Kongsvinger tilkynnir á heimasíðu sinni í dag að Róbert Orri Þorkelsson sé formlega genginn í raðir félagsins á láni frá kanadíska félaginu CF Montreal sem spilar í MLS deildinni vestanhafs. Félagsskiptaglugganum í Noregi var skellt í lás í gærkvöldi en Kongsvinger náði að landa Róberti fyrir lokun. Róbert valdi að fara til norska félagsins á afmælisdaginn sinn, 3. apríl, en hann varð 22 ára í gær.

FRÉTTIR03.04.2024, 11:30

Ísak Óli skrifar undir fjögurra ára samning við FH (Staðfest)

Ísak Óli Ólafsson hefur skrifað undir samning viðFH út 2027. Frá þessu greindi félagið á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu. Hann kemur frá danska liðinu Esbjerg þar sem hann hefur verið síðan 2021. Ísak Óli er Keflvíkingur og er yngri bróðir Sindra Kristins markmanns FH. Ísak Óli, sem er 23 ára miðvörður, hefur leikið 2 A-landsliðsleiki og 36 yngri landsliðsleiki. Áður en hann fór til Esbjerg lék hann með SönderjyskE.

FRÉTTIR01.04.2024, 13:10

Bjarni Mark í Val (Staðfest)

Miðjumaðurinn Bjarni Mark Duffield hefur gert þriggja ára samning við Val. Bjarni sem er 28 ára gamall kemur til Vals frá Start í Noregi. Bjarni lék með Start í tvö tímabil en þar áður var hann í þrjú tímabil hjá Brage í Svíþjóð. Hann er uppalinn hjá KF og KA og hefur einnig leikið með Fjarðabyggð á Íslandi. Hann á að baki þrjá A-landsleiki og segir hann ákvörðunina um að koma í Val fyrst og fremst vera fótboltalegs eðlis.

FRÉTTIR29.03.2024, 13:14

Alonso áfram hjá Leverkusen (Staðfest)

<p>Xabi Alonso stjóri Leverkusen hefur tekið ákvörðun um að vera áfram hjá Leverkusen en hann hefur verið sterklega orðaður við Liverpool og Bayern að undanförnu.</p>

FRÉTTIR29.03.2024, 10:43

Viðar Örn í KA (Staðfest)

<p>Viðar Örn Kjartansson er genginn til liðs við KA en þessi 34 ára gamli framherji lék síðast með CSKA 1948 í Búlgaríu.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.