Fotbolti.net
02.07.20 - 18:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Man City og Liverpool: Foden og Garcia byrja

Phil Foden.

Phil Foden.

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 19:15 hefst stórleikur Manchester City og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Þetta eru tvö efstu lið deildarinnar.

Það er samt ekkert undir í kvöld. Liverpool er búið að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn og er Man City tiltölulega þægilega í öðru sætinu. Man City mun standa heiðursvörð fyrir Liverpool á Etihad-vellinum í kvöld.
Jurgen Klopp er alveg sama í þessum leik þó að liðið sé búið að tryggja sér titilinn, og mætir hann með sitt sterkasta lið. Það eru allir á sínum stað í ógnarsterku liði Liverpool.

Pep Guardiola leyfir tveimur efnilegum leikmönnum að spreyta sig. Eric Garcia er í hjarta varnarinnar og Phil Foden er einnig í byrjunarliðinu.

Hér að neðan má sjá byrjunarliðin.

Byrjunarlið Man City: Ederson; Walker, Garcia, Laporte, Mendy; De Bruyne, Rodri, Gundogan; Foden, Jesus, Sterling.
(Varamenn: Bravo, Stones, Zinchenko, B.Silva, D.Silva, Mahrez, Cancelo, Otamendi, Doyle)

Byrjunarlið Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Robertson; Henderson, Fabinho, Wijnaldum; Salah, Firmino, Mane.
(Varamenn: Adrian, Milner, Keita, Oxlade-Chamberlain, Minamino, Origi, Jones, Elliott, Williams)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Coventry6-66
17Fulham7-35
18Nott. Forest7-45
19Sunderland7-84
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.