Fotbolti.net
29.11.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carragher: Man City þarf að kaupa nýjan markmann

Carragher: Man City þarf að kaupa nýjan markmann
Canon

Mynd: EPA

Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky Sports, segir að tími Gianluigi Donnarumma sé liðinn og Man City þurfi að kaupa nýjan markmann.

Donnarumma var á sínum stað í markinu í 2-2 jafntefli gegn Arsenal í kvöld. Hann gerði mistök þegar Jurrien Timber jafnaði í 2-2 en það var hins vegar umdeilt mark þar sem Gabriel setti olnbogann í hann.
„Þetta er ekki bara markmaður að ganga í gegnum erfiða tíma. Þú ert að horfa á markmanninn og hugsa 'Er hann nógu góður fyrir Man City," sagði Carragher.

„Ég tel að Man City þurfi að kaupa nýjan markmann. Hann er vissulega ekki það sem þeir héldu að þeir væru að kaupa þegar hann kom."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.