Fotbolti.net
29.11.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lögreglan kölluð út vegna mótmæla við æfingasvæði Man Utd

Stuðningsmenn Man Utd

Stuðningsmenn Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Lögreglan í Manchester var kölluð til á æfingasvæði Man Utd í dag vegna mótmæla sem brutust út á svæðinu.

Í það minnsta fimm lögreglubílar sáust á svæðinu. Aðallið Man Utd æfði ekki í dag þar sem liðið var í fríi eftir 4-0 tap gegn Brentford í gær.
Lögreglan segir að hún muni aðstoða öryggisgæsluna á svæðinu eftir „lítil mótmæli". Mótmælunum lauk án nokkurra vandræða. Enginn slasaðist eða var handtekinn.

Lögreglan verður áfram í sambandi við öryggisgæsluna næsta sólarhringinn til að verja svæðið og rétt fólks til að mótmæla friðsamlega.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.