mið 03.apr 2024 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net - 6. sæti: FH
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að FH muni enda í sjötta sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. FH var lengi vel í Evrópubaráttu í fyrra en endaði að lokum í fimmta sæti.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. FH, 81 stig
7. KA, 66 stig
8. Fram, 60 stig
9. ÍA, 59 stig
10. Vestri, 34 stig
11. Fylkir, 24 stig
12. HK, 14 stig
Um liðið: Eftir hörmulegt 2022 tímabil, þá kom FH vel til baka á síðasta tímabili. Liðið var hársbreidd frá því að falla fyrir einu og hálfu ári en eftir síðasta tímabil er ágætis ástæða til bjartsýni í Kaplakrikanum. Það er allavega einhver grunnur til að byggja á. FH-ingar hljóta samt að fussa og sveia yfir þessari spá þar sem Evrópusæti er eflaust markmiðið.
Þjálfarinn: Heimir Guðjónsson er goðsögn í Kaplakrika en hann sneri til baka fyrir síðustu leiktíð og var mikil ánægja með það á meðal stuðningsmanna. Heimir hefur unnið allt sem hægt er að vinna í íslenskum fótbolta og er bara sigurvegari. Nær hann að koma FH aftur á toppinn í íslenskum fótbolta?
Fótbolti.net fær sérfræðingana Einar Guðnason og Harald Árna Hróðmarsson til að rýna í styrkleika, veikleika og annað hjá liðunum sem spila í Bestu deildinni í sumar. Haraldur, sem er fyrrum aðstoðarþjálfari ÍA og Vals, fer yfir það helsta hjá FH.
Styrkleikar: FH eru vel mannaðir í flestum stöðum og mjög vel skipulagðir. Þeir hafa styrkt vörnina í vetur og eru með leikmannahóp á mjög góðum aldri. Meiðsli lykilmanna í úrslitakeppninni gerðu þeim erfitt fyrir í baráttunni um Evrópusæti en hópurinn er breiðari í ár og Heimir veit upp á hár hvernig á að ná árangri í þessari deild.
Veikleikar: Markaskorun gæti orðið vandamál, það eru margir í liðinu sem geta skorað en enginn sem hefur farið yfir 10 mörk í deildinni og þeirri markahæsti maður í fyrra er aðstoðarþjálfari í ár. Markvarslan var ekki góð í fyrra og Sindri Kristinn þarf að sýna sitt rétta andlit í ár.
Lykilmenn: Björn Daníel Sverrisson er einfaldlega frábær leikmaður og ef hann á gott tímabil er FH í góðum málum. Böðvar Böðvarsson styrkir FH mikið og hann er ekki einungis góður leikmaður heldur mikill karakter sem leiðir með góðu fordæmi. Dusan Brkovic er fenginn í Kaplakrika til að binda saman varnarleikinn og hann mun gera menn í kringum sig betri.
Leikmaður sem á að fylgjast með: Baldur Kári Helgason mun spila stórt hlutverk í FH þrátt fyrir ungan aldur. Mjög góður miðjumaður sem gæti slegið í gegn í sumar.
Komnir:
Ísak Óli Ólafsson frá Esbjerg
Böðvar Böðvarsson frá Svíþjóð
Dusan Brkovic frá KA
Sigurður Bjartur Hallsson frá KR
Arnór Borg Guðjohnsen frá Víkingi (var á láni - keyptur)
Kjartan Kári Halldórsson frá Noregi (var á láni - keyptur)
Allan Purisevic frá Stjörnunni
Arngrímur Bjartur Guðmundsson frá Ægi (var á láni)
Dagur Þór Hafþórsson frá ÍR (var á láni)
Farnir:
Davíð Snær Jóhannsson til Álasunds
Kjartan Henry Finnbogason orðinn aðstoðarþjálfari
Eggert Gunnþór Jónsson til KFA
Dani Hatakka
Eetu Mömmö til Lecce (var á láni)
Viðar Ari Jónsson til HamKam
Dómur Haraldar fyrir gluggann: 6/10. Davíð Snær var besti leikmaður FH og Kjartan Henry og Eggert Jóns voru algjörir lykilmenn. Að því sögðu náðu Hafnfirðingar að styrkja sig heilt yfir og ég reikna með að Vuk og Úlfur verði enn betri í ár en í fyrra. Böddi mun reynast frábær kaup.
Leikmannalisti:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
12. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
4. Ólafur Guðmundsson
5. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
10. Björn Daníel Sverrisson
11. Arnór Borg Guðjohnsen
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ástbjörn Þórðarson
25. Dusan Brkovic
27. Jóhann Ægir Arnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
33. Úlfur Ágúst Björnsson
34. Logi Hrafn Róbertsson
34. Róbert Thor Valdimarsson
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
39. Óttar Uni Steinbjörnsson
40. Bjarki Steinsen
41. Dagur Traustason
42. Allan Purisevic
Ísak Óli Ólafsson
Fyrstu fimm leikir FH:
8. apríl, Breiðablik - FH (Kópavogsvöllur)
13. apríl, KA - FH (Greifavöllurinn)
20. apríl, FH - HK (Kaplakrikavöllur)
28. apríl, ÍA - FH (ELKEM völlurinn)
4. apríl, FH - Vestri (Kaplakrikavöllur)>
Í besta og versta falli: Í besta falli nær Heimir að búa til enn eina úrslitavélina og þeir verða ósigrandi í Kaplakrika. Evrópusæti er raunhæft markmið og jafnvel að brjótast inn í topp 3 ef eitt af toppliðunum veldur vonbrigðum. Í versta falli nær FH ekki að skora, heldur áfram að leka ódýrum mörkum og þeir hafa að engu að keppa í úrslitakeppninni.
Spámennirnir: Aksentije Milisic, Anton Freyr Jónsson, Arnar Laufdal, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.