Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 06. júlí 2020 16:15
Fótbolti.net
Bestur í 4. umferð: Átti þátt í fjórum mörkum gegn Val
Viktor Jónsson (ÍA)
Viktor fagnar með Bjarka Steini Bjarkasyni í leiknum á föstudaginn.
Viktor fagnar með Bjarka Steini Bjarkasyni í leiknum á föstudaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Jónsson er leikmaður 4. umferðar í Pepsi Max-deild karla en hann var frábær í 4-1 útisigri ÍA á Val á föstudaginn. Vikor skoraði eitt mark og lagði upp tvö til viðbótar í mögnuðum sigri Skagamanna.

Viktor hefur aðallega leikið sem fremsti maður í gegnum tíðina en á þessu tímabili hefur hann leikið á hægri kantinum hjá ÍA.

„Hann átti frábæran leik," sagði Ingólfur Sigurðsson í Innkastinu um frammistöðu Viktors gegn Val.

„Frammistaða hans var geggjuð. Ég er ánægður með hans hönd að ýta þessum bolta af stað og vonandi heldur hann áfram að rúlla. Það var stanslaus ógn af honum og Valsarar áttu í miklu basli með hann," sagði Gunnar Birgisson.

„Varnarlína Vals leit út eins og miðlungs varnarlína í 2. deild. Þeir voru að láta teyma sig í alls konar vitleysu. Ef Tryggvi, Viktor og Bjark i Steinn ná sér á strik þá er þessi sóknarlína ÍA ekkert lamb að leika sér við. Er þetta þá ekki topp þrír sóknarlína í deildinni?"

Viktor skilaði hvorki meira né minna en 29 stigum í þessari umferð í Draumaliðsdeild Eyjabita.

„Þeir eru heppnir sem hafa tekið sénsinn á mér í sumar. Verði þeim að góðu," sagði Viktor léttur í bragði í viðtali eftir leik aðspurður út í Draumaliðsdeildina.

Hér að neðan má sjá viðtal við Viktor eftir leikinn á föstudaginn.

Domino's gefur verðlaun
Leikmenn umferðarinnar í Pepsi Max-deild karla og kvenna fá verðlaun frá Domino's í sumar.

Sjá einnig:
Leikmaður 1. umferðar - Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Leikmaður 2. umferðar - Valgeir Valgeirsson (HK)
Leikmaður 3. umferðar - Óttar Magnús Karlsson (Víkingur R.)
Viktor Jóns við Fantasy spilara: Verði þeim að góðu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner