06.11.26 - 18:11
Ívan Guðjón Baldursson
Segja að Ronaldo hafi hafnað kveðjuleik og neiti að tala við þjálfarann

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski miðillinn El Observador greinir frá því að Cristiano Ronaldo hafi hafnað því að spila kveðjuleik með landsliðinu.

TENGT EFNI
Krísufundur með Ronaldo
Hann er ósáttur með Jorge Jesus landsliðsþjálfara og neitar að tala við hann eftir ósætti í síðasta landsleikjaglugga. Einhverjir miðlar héldu því fram að Jesus og Ronaldo hefðu leyst deilurnar sín á milli, en svo virðist ekki vera.
Búist var við að Ronaldo yrði með portúgalska landsliðshópnum í komandi glugga og því kom það mörgum á óvart þegar hann gaf út yfirlýsingu í gær um að leggja landsliðsskóna á hilluna.
Ronaldo er 41 árs gamall og fór í fýlu þegar hann var látinn hita upp sem ónotaður varamaður í sigri í Noregi í lok september.