Fotbolti.net
06.10.26 - 19:15
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo sendi frá sér langa yfirlýsingu - Ætlar ekki að hætta

Cristiano Ronaldo

Cristiano Ronaldo

Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo hefur sent frá sér langa yfirlýsingu um það sem gerðist í landsleikjahléinu og tekur skýrt fram að hann sé ekki hættur með landsliðinu og sé tilbúinn að spila í næsta verkefni í nóvember.
Jesus: Ronaldo bjó til úlfalda úr mýflugu
TENGT EFNI

Jesus: Ronaldo bjó til úlfalda úr mýflugu

Ronaldo, sem er 41 árs og leikja- og markahæsti leikmaður í sögu portúgalska landsliðsins, yfirgaf hópinn eftir að hafa setið allan tímann á bekknum gegn Noregi í annarri umferð Þjóðadeildarinnar.

Hann var ósáttur við að Jorge Jesus hefði ekki útskýrt hvers vegna hann fékk ekkert að spila. Þá fannst honum þjálfarinn hafa átt að greina frá samkomulagi þeirra fyrir keppnina á fréttamannafundi.

Ronaldo sendi frá sér langa yfirlýsingu í kvöld þar sem hann fór yfir sína hlið málsins. Samkvæmt honum var samkomulagið að hann spilaði báða heimaleikina en hvíldi í útileikjunum. Hann myndi þó ferðast með liðinu og taka þátt í æfingum.

Jesus hafi síðan sagt honum að hann þyrfti á honum að halda og fengi hálftíma gegn Noregi. Hann var látinn hita upp en kom aldrei inn á og telur Ronaldo að þjálfarinn hafi þar með svikið loforð sitt.

Fundað hefur verið um málið og ESPN hélt því fram að Ronaldo ætlaði ekki að snúa aftur á meðan Jesus stýrði liðinu. Því hafnar hann og segist áfram ætla að gefa kost á sér. Nú verður fróðlegt að sjá hvort Jesus velji hann í næsta hóp eftir að hann sagði sína sögu í yfirlýsingunni.

Ronaldo ætlar hvorki að kveðja landsliðið né leggja skóna á hilluna. Hann er þó tilbúinn að taka afleiðingunum af því að hafa yfirgefið hópinn, þar á meðal banni ef portúgalska fótboltasambandið ákveður að refsa honum með þeim hætti.

Hann bað jafnframt portúgölsku þjóðina og liðsfélaga sína afsökunar á því að hafa yfirgefið hópinn.

„Ég skulda liðsfélögum mínum í landsliðinu afsökunarbeiðni fyrir að hafa farið. Þjálfarinn stóð ekki við orð sín og þeir sem sátu fundinn geta staðfest það en ég hefði samt ekki átt að gera þetta. Ábyrgðin er alfarið mín.“

„Ég bið portúgölsku þjóðina enn og aftur afsökunar en það skiptir mig miklu máli að fólk standi við orð sín. Mér fannst að eftir þetta myndi það aðeins gera stöðuna verri fyrir hópinn ef ég yrði áfram. Ég gerði það sem ég hef alltaf sagst ætla að gera ef mér fyndist ég ekki lengur geta komið að gagni: pakka niður og fara,“
sagði Ronaldo meðal annars.


Jorge Jesus

Jorge Jesus

Canon

Mynd: EPA

Það verður fróðlegt að sjá hvort Ronaldo verði valinn í næsta mánuði

Það verður fróðlegt að sjá hvort Ronaldo verði valinn í næsta mánuði

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.