30.09.26 - 15:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Krísufundur með Ronaldo

Cristiano Ronaldo.

Mynd: EPA

Jorge Jesus er nýr landsliðsþjálfari Portúgal.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo.

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo er ekki sagður vera sáttur með það að hafa setið allan tímann á bekknum í leik Portúgal gegn Noregi í Þjóðadeildinni á dögunum.
Eftir leikinn gegn Noregi gekk Ronaldo beint af velli og niður í búningsklefa í stað þess að taka þátt í að þakka portúgölsku stuðningsmönnunum fyrir stuðninginn. Heimildir The Athletic herma að Ronaldo hafi verið pirraður yfir því að hafa ekki fengið mínútu í leiknum.

TENGT EFNI
Málpípa Ronaldo talar um brotin loforð - „Þetta lítur ekki vel út“
Ronaldo, sem er 41 árs, hefur síðan ekki æft með liðsfélögum sínum á mánudag eða þriðjudag. Portúgalska sambandið hefur þó ekki greint frá því að hann sé meiddur eða glími við líkamleg vandamál.
Portúgalski miðillinn A Bola var með „krísuástand“ á forsíðu sinni á miðvikudag og greint var frá því að krísufundur hefði verið boðaður með Ronaldo, Jesus og Pedro Proenca, forseta portúgalska sambandsins.
Jesus og Ronaldo þekkjast vel eftir að Jesus þjálfaði Ronaldo hjá Al-Nassr á síðustu leiktíð. Þeir unnu saman deildarmeistaratitilinn í Sádi-Arabíu og hefur samband þeirra verið sagt gott. Jesus hefur þó gefið í skyn að Ronaldo muni ekki lengur sjálfkrafa spila allar mínútur.
Portúgal mætir Danmörku á fimmtudag og verður því fróðlegt að sjá hvort Ronaldo snúi aftur í byrjunarliðið eftir þessa skrítnu daga.