Fotbolti.net
10.11.26 - 08:40
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá Benidorm

Betri andi hjá Búlgörum en fyrir leikinn á Íslandi

Búlgaría steinlá á Laugardalsvelli.

Búlgaría steinlá á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Marin Petkov, leikmaður Al Taawoun í Sádi-Arabíu, segir að andinn í búlgarska landsliðinu væri orðinn betri í kjölfar góðrar frammistöðu og sigurs gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni í október.
Búlgarska boltahrunið - Voru með eitt besta lið heims en eru nú í 90. sæti
TENGT EFNI

Búlgarska boltahrunið - Voru með eitt besta lið heims en eru nú í 90. sæti

Petkov missti af þeim leik þar sem eiginkona hans fæddi dóttur en hann var með á Laugardalsvelli þegar Búlgaría tapaði 3-0 gegn Íslandi.

Búlgaría tekur á móti Íslandi í Plovdiv á föstudag.

„Mér líður mjög vel á heimavelli. Andinn er góður eftir frammistöðuna gegn Lúxemborg. Við einbeitum okkur að leikjunum tveimur sem framundan eru. Nýju leikmennirnir munu falla vel inn í hópinn; við þurfum að hjálpa þeim við það. Þeir munu styrkja liðið," segir Petkov við gong.bg.

„Í næsta leik verðum við að mæta til leiks og spila betur en í leiknum í Reykjavík. Úrslitin í þessum leikjum hafa ekki verið jákvæð. Staðan endurspeglar það sem við höfum sýnt á vellinum."

Búlgarar voru arfadaprir á Laugardalsvelli en sýndu betri leik gegn Lúxemborg. Landslið þjóðarinnar er í mikilli lægð en bráðabirgðaþjálfairnn Atanas Ribarski, þjálfari U19-landsliðsins, er enn með stjórnartaumana og klárar þessa riðlakeppni.
Betri andi hjá Búlgörum en fyrir leikinn á Íslandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Betri andi hjá Búlgörum en fyrir leikinn á Íslandi
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.