30.09.26 - 12:30
Elvar Geir Magnússon
Búlgarska boltahrunið - Voru með eitt besta lið heims en eru nú í 90. sæti

Óeirðalögreglan bregst við í mótmælum gegn Borislav Mihaylov, fyrrum forseta búlgarska sambandsins, árið 2023.

Mynd: EPA

Dimitar Berbatov í búlgarska landsliðsbúningnum.

Mynd: EPA

Borislav Mihaylov, fyrrum forseti búlgarska sambandsins.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Árið 1994 komst Búlgaría í undanúrslit heimsmeistaramótsins með því að vinna óvæntan sigur gegn Þýskalandi. Meðal leikmanna var Hristo Stoichkov sem hlaut Ballon d'Or Gullboltann það ár. Búlgaría kleif hæst upp í 8. sæti heimslistans.
En nú er öldin svo sannarlega önnur. Búlgaría er í C-deild Þjóðadeildarinar, án sigurs eftir leiki gegn Lúxemborg og Eistlandi, og situr í 90. sæti hemslistans þegar liðið er þjálfaralaust á leið til Íslands til að spila á Laugardalsvelli á laugardag.
En hverjar eru ástæðurnar fyrir hruni búlgarska fótboltans? Þegar reynt er að rýna í það eru margir samverkandi þættir sem hafa verið nefndir.

TENGT EFNI
Þjálfari Búlgaríu sagði upp fyrir ferðalagið til Íslands
Sterk tengsl fótboltans við mafíuna
Stjórnleysi, valdatafl, spilling, hagræðing úrslita, sterk tengsl fótboltafélaga við mafíuna og átök bak við tjöldin. Undanfarin ár hefur búlgarskur fótbolti komist í fréttirnar fyrir neikvæða hluti.
Nú í morgun bárust fréttir af því að forseti Botev Plovdiv sem leikur í efstu deild Búlgaríu, Iliyan Filipov, hafi verið skotinn til bana þegar hann var á heimleið eftir leik liðsins. Árið 2007 var Alexander Tasev þriðji forseti fótboltafélagsins Lokomotiv Plovdiv sem var myrtur á tveggja ára tímabili. Breska ríkisútvarpið var með fréttaskýringu 2012 þar sem ljósi var varpað á sterk tengsl búlgarska fótboltans og mafíunnar í landinu.
Fótboltaáhugafólk í Búlgaríu hefur misst trú á deildinni heima fyrir og er hún aðeins í 28. sæti á styrkleikalista evrópska fótboltasambandsins. Mörg af liðunum eru með mjög lélega áhorfendaaðsókn.
Gagnrýnendur segja félög landsins hafa sleppt því að fjárfesta í unglingastarfinu og í staðinn hafi verið treyst á ódýra erlenda leikmenn til að manna liðin. Þá hefur Búlgaría algjörlega setið eftir þegar kemur að uppbyggingu mannvirkja og aðstöðu.
Forsetinn sem sagði tvisvar af sér
Síðasta stórmót sem Búlgaría komst á var Evrópumótið í Portúgal 2004. Dimitar Berbatov og félagar enduðu án stiga í riðlinum en þetta er ártalið sem bent er á þegar talað er um upphaf hrunsins í búlgörskum fótbolta og margir benda á Borislav Mihaylov, sem kjörinn varð forseti búlgarska sambandsins það ár, sem sökudólg.
Mihaylov var markvörður og fyrirliði búlgarska landsliðsins í velgengninni á HM 1994 en var ekki sama hetjan í forsetastólnum.
Gengi búlgarska landsliðsins og félagsliða byrjaði að versna eftir að Mihaylov tók við stjórnartaumunum og utan vallar komu upp ýmis umdeild mál, þar á meðal varð rasismi meðal áhorfenda að stóru vandamáli sem ekki var tekið á. Mihaylov steig af stóli 2019 eftir að íþróttamálaráðherra landsins gaf út að ríkisstjórnin myndi ekki vinna með fótboltasambandinu á meðan hann væri við völd.
Mihail Kasabov varð bráðabirgðaforseti en vegna Covid faraldursins var ekki kosið formlega um afsögn Mihaylov. Það kom því mjög á óvart þegar Mihaylov bauð sig aftur fram til forseta 2021 en hann fékk mótframboð frá Berbatov sem boðaði það að hreinsa til hjá sambandinu. Mihaylov bar sigur úr býtum í kosningunni þrátt fyrir að brot hafi verið framin á kosningalögum. Nokkur félög sem höfðu lýst yfir stuðningi við Berbatov voru útilokuð frá kosningunni.
Mihaylov var mótmælt harðlega af fótboltaáhugafólki og voru borðar á öllum leikjum þar sem kallað var eftir því að hann færi burt. Búlgarska sambandið svaraði því með refsingum í garð félaga fyrir mótmælin.
Landsleikur Búlgaríu gegn Ungverjalandi 2023 var færður og leikinn fyrir luktum dyrum eftir að fótboltabullur frá stærstu félögum landsins höfðu skipulagt mótmæli gegn Mihaylov á leiknum. Í nóvember 2023 sagði Mihaylov aftur af sér eftir kröftug mótmæli og ákall frá þekktum einstaklingum og stjórnmálamönnum í landinu. Hann lést eftir hjartaáfall á síðasta ári.
Kastaði inn hvíta handklæðinu
Það gengur mjög erfiðlega hjá Búlgörum að rétta úr kútnum landsliðsþjálfarinn Aleksandar Dimitrov kastaði inn hvíta handklæðinu eftir markalausa jafnteflið gegn Eistlandi í gær. Undir stjórn Dimitrov vann Búlgaría þrjá leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði fimm leikjum. Liðið er með eitt stig í Þjóðadeildarriðlinum eftir tap gegn Lúxemborg í fyrstu umferð.
Dimitrov sagði mikilvægt að Búlgarir væru ekki að dvelja í fortíðinni heldur þyrftu að horfast á við stöðuna eins og hún er í dag. Ekki hefur verið gefið út hver muni stýra Búlgaríu á Laugardalsvelli á laugardag.