Fotbolti.net
15.11.26 - 21:08
Elvar Geir Magnússon

Ísak um West Ham orðróminn - „Eru þá líklegast að ljúga“

Ísak Bergmann leikur sinn 50. landsleik á morgun.

Ísak Bergmann leikur sinn 50. landsleik á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður íslenska landsliðsins, fer ekki leynt með þann draum sinn að spila í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni.

Í sumar komu fréttir af því að hann væri á blaði hjá West Ham, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

„Já, ég sá þetta líka," segir Ísak, spurður út í orðróminn um West Ham.

„Ég náttúrulega ólst upp á Englandi og draumurinn einn daginn er að spila á Englandi en ég er mjög ánægður hjá Köln. Við erum í smá brasi núna, erum rétt fyrir ofan fallsæti og ég náttúrulega bara fókusa á að hjálpa liðinu sem mest þar."

„Það er draumur allra að spila í Premier League, þeir sem segja annað eru líklegast að ljúga. Ég er á flottum stað í Köln og spila í Bundesligunni í hverri viku. En maður stefnir alltaf hærra sem fótboltamaður."

Ísak spilar fyrir Köln í Þýskalandi en hann fæddist á Englandi í mars 2003 þegar faðir hans, Jóhannes Karl Guðjónsson, lék með Aston Villa.
Ísak Bergmann til West Ham?
TENGT EFNI

Ísak Bergmann til West Ham?

Ísak að fara að leika 50. landsleikinn
Ísak er 23 ára en er að fara að leika sinn 50. landsleik á morgun þegar Ísland mætir Lúxemborg. Hann segist ekki vera farinn að hugsa um að ná leikjameti í framtíðinni.

„Ég tek bara einn leik og eitt verkefni í einu og reyni að haldast heill sem lengst. Það er stórt fyrir mig að ná 50 leikjum, 23 ára. Ég tek þetta eitt skref í einu og reyni að vinna leikinn á morgun. Þá heldur þetta áfram að tikka. Núna er ég bara að reyna að hjálpa Íslandi að vinna fótboltaleiki," segir Ísak Bergmann Jóhannesson.

Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.
Ísak um West Ham orðróminn - „Eru þá líklegast að ljúga“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísak um West Ham orðróminn - „Eru þá líklegast að ljúga“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.