Fotbolti.net
15.11.26 - 21:56
Elvar Geir Magnússon

Leiðtogi þjóðarinnar kveður - „Þolir mig örugglega ekki stundum“

Aron Einar Gunnarsson.

Aron Einar Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Landsliðsgoðsögnin Aron Einar Gunnarsson tekur þátt í sínum síðasta landsleik þegar Ísland tekur á móti Lúxemborg í Þjóðadeildinni klukkan 17 á morgun.

Aron Einar getur jafnað leikjamet Birkis Bjarnasonar, fyrrum liðsfélaga síns, spili hann í leiknum.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði á fréttamannafundi að það væri þó alls ekki ljóst hvort Aron muni koma við sögu í leiknum. Ísland er að berjast um toppsæti riðilsins.
Aron Einar: Bara mínir nánustu vita hvað ég þurfti að ganga í gegnum
TENGT EFNI

Aron Einar: Bara mínir nánustu vita hvað ég þurfti að ganga í gegnum

„Þetta er náttúrulega stór stund í íslenskum fótbolta og fyrir hann persónulega. Auðvitað væri draumastaðan sú að við myndum tryggja okkur sigur á morgun, sigur í riðlinum og hann myndi fá þann heiður sem að hann á skilið," segir Arnar.

„En tilfinningasemi á ekki við einhvern veginn á morgun. Ef staðan verður þannig að við sjáum ekki færi á að hann muni spila mínútu þá er það bara þannig. Það yrði vissulega leiðinlegt. Vonandi erum við að fara að vinna leikinn á morgun og hann mun fá góða stund bæði inni á vellinum og til að kveðja okkar stuðningsmenn. Þessi ferill náttúrulega er búinn að vera ótrúlegur."

Arnar segir að Aron hefði væntanlega viljað fá stærra hlutverk innan vallar í stjórnartíð sinni.

„Þið kannski sjáið ekki hvað hann er búinn að gera fyrir mig utan vallar núna þessa 18 mánuði sem að við erum búnir að vera saman. Hann er búinn að hjálpa guttunum og Orra fyrirliða, þetta er bara ómetanlegt. Það sýnir bara hvernig maður hann er Vafalítið er hann svekktur og þolir mig örugglega ekki stundum því hann er búinn að spila minna en hann kannski hélt sjálfur. En hann hefur aldrei látið mig finna fyrir því nokkra einustu stund. Þannig að við munum gera okkar allra besta til að kveðjustundin verði sem merkilegust á morgun," segir Arnar.

Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður íslenska liðsins, var einnig á fréttamannafundinum og hann segir það stóra stund að fá að taka þátt í lokaverkefni Arons.

„Aron er náttúrulega búinn að vera leiðtogi þjóðarinnar frá því hann byrjaði nánast. Vonandi getum við unnið leikinn og klárað þennan landsliðsferil hjá honum mjög vel. Það er auka hvatning fyrir okkur. Aron hefur náttúrulega lagt allt í sölurnar fyrir íslenska landsliðið og okkur langar að hann klári ferilinn eins vel og hægt er," segir Ísak Bergmann.
Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar hefur leikið 112 landsleiki.

Aron Einar hefur leikið 112 landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.