Fotbolti.net
05.10.26 - 09:12
Elvar Geir Magnússon

Aron Einar: Skiptir mig miklu máli að hafa ákveðið það sjálfur

Aron Einar fyrir landsleikinn gegn Búlgaríu.

Aron Einar fyrir landsleikinn gegn Búlgaríu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson tilkynnti það fyrir Þjóðadeildina að þetta yrði hans síðasta keppni með íslenska landsliðinu. Aron var í byrjunarliðinu í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á laugardag.

Hann ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn og var spurður að því hvernig tilfinningin væri, vitandi að þetta væru hans síðustu landsleikir?

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu
TENGT EFNI

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu

„Léttir," svaraði Aron.

Að hvaða leyti?

„Þetta hefur verið langur tími, miklar tilfinningar, upp, niður, fram, aftur. Mikil hamingja, stundum neikvæðni. Að hafa bara ákveðið það sjálfur, það skipti mig bara miklu máli og ég gerði það bara eftir góðar samræður við fjölskylduna mína og bara hlustaði á líkamann. Það er komin ákveðin þreyta, margir leikir og þetta tekur á, það tekur á að gefa sig alltaf hundrað prósent. Þess vegna líður mér eins og þetta sé léttir og bara vitandi það líka sjálfur að þetta sé ekki eitthvað sem ég þarf að pæla mikið meira í þannig að þess vegna ákvað ég að gera þetta bara sjálfur," segir Aron.

Ákvörðunin sem slík, var hún erfið að segja stopp sjálfur?

„Já, það segir sig svolítið sjálft. Þetta eru 18 ár af, eins og ég sagði áðan, upp, niður, hamingja, þú veist, svekkelsi í mörgum leikjum, mörg ferðalög, farið í gegnum ýmsa hópa af leikmönnum. Nýjungar, breytingar og þjálfaraskiptingar. Ég finn bara að þetta er bara komið á tíma og eins og ég segi, að hafa ákveðið það sjálfur, það bara skiptir mig miklu máli."
Aron Einar: Skiptir mig miklu máli að hafa ákveðið það sjálfur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron um leikjametið og bekkjarsetuna í Lúxemborg - „Breyti ekki ákvörðun þjálfarans“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.