| fös 17.apr 2026 14:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 6. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Valur muni enda í sjötta sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Valur verður um miðja deild ef spáin rætist.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Valur, 61 stig
7. Þór/KA, 43 stig
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig
Um liðið: Valur fer inn í mótið í nokkuð nýrri stöðu miðað við það sem stuðningsmenn félagsins hafa vanist síðustu ár, ef síðasta ár er tekið út úr myndinni. Liðinu er spáð 6. sæti, sem endurspeglar ákveðna óvissu í kjölfarið á breytingum sem hafa orðið eftir að tímabilinu 2024 lauk. Valur hefur lengi verið þekkt fyrir að sækja til sín fremstu leikmenn landsins, landsliðskonur, og berjast um alla titla en nú virðist stefnan hafa færst í átt að yngri og óreyndari leikmönnum sem eru enn að móta sig og sinn feril. Síðasta tímabil var undir væntingum þar sem liðið endaði í sjötta sætinu, sem er talsverð breyting frá þeim árum þegar Valur var besta lið landsins undir stjórn Péturs Péturssonar. Þá var liðið með skýra og sterka sjálfsmynd en nú er meira um uppbyggingu og leit að nýju jafnvægi innan hópsins. Það þýðir þó ekki að það vanti gæði. Valur er enn með nokkuð sterkan kjarna en spurningin er hversu langan tíma það tekur fyrir þetta nýja verkefni að smella saman, og hvort það muni yfir höfuð gerast.
Þjálfarinn: Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson byrjuðu síðasta tímabil sem tveir aðalþjálfarar liðsins. Svona kerfi hefur aldrei virkað á Íslandi og það er ótrúlegt að félög séu enn að reyna að vinna hlutina svona. Á miðju tímabili steig Kristján frá borði og Matthías tók einn við liðinu. Matthías þekkir auðvitað vel til hjá Val en hann spilaði með liðinu um árabil og þá var hann aðstoðarmaður Péturs Péturssonar áður en hann fór til Gróttu þar sem hann var aðalþjálfari í eitt tímabil. Matthías er í stóru verkefni á Hlíðarenda og þarf að sýna það og sanna að hann sé rétti maðurinn í starfið.
Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.
Project nothing eða algjör snilld
„Veturinn hjá Val hefur farið í það að herja á foreldra hjá leikmönnum annara liða og hefur það borið góðann árangur í að safna liði fyrir komandi tímabil."
„Reykjavíkurmeistarar en varla unnið leik eftir það og vandræðalegt tap við Fram í Lengjubikar sagði manni ansi margt um ástand liðsins."
„Hópurinn er stór og verður fróðlegt að sjá alla þessa ungu og efnilegu leikmenn fá þann leiktíma sem búið er að lofa þeim. Það verður enginn millivegur í ár þetta verður annað hvort hörku toppbarátta eða alvöru fallbarátta."
„Hópurinn er stútfullur af hæfileikum og vonandi sjáum við þær springa út í sumar. Verkefni þjálfarans er að búa til liðsheild því hæfileikarnir eru til staðar."
Lykilmenn: Málfríður Anna Eiríksdóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir
Það hefur mikil reynsla farið úr Valsliðinu undanfarin misseri en Málfríður Anna og Berglind Rós eru leikmenn með gríðarlega reynslu og mikil gæði. Þær hafa líka unnið titla með félaginu og vita hvernig sú tilfinning er. Málfríður er uppalin hjá Val og hefur allan sinn meistaraflokksferil leikið með félaginu. Hún fór til danska liðsins B93 í upphafi síðasta árs en er nú komin aftur alfarið heim. Hún getur leyst margar stöður og er frábær leikmaður. Berglind Rós er einn besti miðjumaður deildarinnar og fór til að mynda með landsliðinu á Evrópumótið síðasta sumar. Hún þarf að finna taktinn á nýjan leik.
Gaman að fylgjast með: Ísabella Sara Tryggvadóttir
Ísabella Sara er komin aftur á Hlíðarenda eftir stutt stopp hjá Rosengård í Svíþjóð. Hún er enn efnilegur leikmaður en þarf að taka mikla ábyrgð í liðinu í sumar, mun meiri ábyrgð en þegar hún var hérna síðast. Hún er með mikil gæði og þarf að skila mörkum og stoðsendingum fyrir Valsliðið í sumar. Það verður gaman að fylgjast með henni í endurkomunni í Bestu deildina.
Komnar:
Ísabella Sara Tryggvadóttir frá Rosengård
Margrét Brynja Kristinsdóttir frá FH
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir frá Þór/KA
Sonja Björg Sigurðardóttir frá Þór/KA
Eyrún Vala Harðardóttir frá Fram
Sigrún Ísfold Valsdóttir frá HK
Ágústa María Valtýsdóttir frá Haukum (var á láni)
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir frá Tindastóli (var á láni)
Glódís María Gunnarsdóttir frá Haukum (var á láni)
Farnar:
Fanndís Friðriksdóttir hætt
Elísa Viðarsdóttir í Breiðablik
Jordyn Rhodes
Jasmín Erla Ingadóttir í Víking
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir
Helena Ósk Hálfdánardóttir í Víking
Arna Sif Ásgrímsdóttir í Þór/KA
Natasha Anasi í Grindavík/Njarðvík
Fyrstu fimm leikir Vals:
25. apríl, Valur - Grindavík/Njarðvík (N1 völlurinn Hlíðarenda)
29. apríl, Stjarnan - Valur (Samsungvöllurinn)
5. maí, Valur - ÍBV (N1 völlurinn Hlíðarenda)
11. maí, Breiðablik - Valur (Kópavogsvöllur)
20. maí, Valur - Fram (N1 völlurinn Hlíðarenda)
Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson