Gylfi Þór Sigurðsson er genginn í raðir Víkings en félagið kaupir hann frá Val. Félagið þakkar Val fyrir heiðarleg og goð samskipti í kringum kaupin. Valur samþykkti einnig tilboð frá Breiðabliki í Gylfa en hann valdi að ganga í raðir Víkings. Kaupverðið er tæplega 20 milljónir.
Gylfi er 35 ára miðjumaður, hann er besti- og markahæsti leikmaður landsliðsins í sögunni. Hann hafði verið hjá Val í tæplega ár.
Hann skoraði 11 leikjum í 19 leikjum á síðasta tímabili og var í liði tímabilsins. Víkingur reyndi að fá Gylfa þegar hann samdi á Íslandi en þá varð Valur fyrir valinu.
Gylfi er 35 ára miðjumaður, hann er besti- og markahæsti leikmaður landsliðsins í sögunni. Hann hafði verið hjá Val í tæplega ár.
Hann skoraði 11 leikjum í 19 leikjum á síðasta tímabili og var í liði tímabilsins. Víkingur reyndi að fá Gylfa þegar hann samdi á Íslandi en þá varð Valur fyrir valinu.
Af heimasíðu Víkings
Víkingur tilkynnir með mikilli hamingju að félagið hefur samið við Gylfa Þór Sigurðsson, sem kemur til félagsins frá Val. Gylfa Þór þarf ekki að kynna fyrir neinum, en hann er landsliðsmaður í knattspyrnu og einn allra besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur alið af sér.
Gylfi, sem er uppalinn FH-ingur, fór 15 ára gamall til Englands og samdi við Reading. Gylfi lék með félaginu og öðrum á láni áður en hann fór til Hoffenheim í Þýskalandi og síðan til Swansea þar sem hann sló í gegn. Gylfi var lykilmaður hjá Tottenham Hotspur og Everton í Englandi, Lyngby í Danmörku og nú síðast með Val í Bestu deild karla.
Gylfi hefur spilað á þremur stórmótum með Íslandi. Fyrst með U21 landsliði Íslands á EM árið 2011 og með A landsliði karla á EM 2016 og HM 2018. Þá er hann markahæsti landsliðsmaður karla frá upphafi.
Gylfi kemur til Víkings á frábærum tíma, en liðið er nú í miðju einvígi gegn Panathinaikos í umspili um sæti í 16 liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Framundan er spennandi tímabil í Bestu deild karla og er mikil tilhlökkun að fá að sjá Gylfa í svörtu og rauðu treyjunni.
Knattspyrnudeild Víkings vill þakka Knattspyrnudeild Vals fyrir heiðarleg og góð samskipti í kringum kaupin á Gylfa. Við bjóðum Gylfa Þór Sigurðsson hjartanlega velkominn í Hamingjuna og hlökkum til þess að fylgjast með honum á vellinum í sumar.
Athugasemdir