18.11.26 - 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vinícius: Ég verð líka að fá að njóta lífsins stundum

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Vinícius Júnior svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir vináttulandsleik Brasilíu gegn Singapúr sem fór fram í gær.

TENGT EFNI
Arsenal umræðan hafði áhrif á spilamennsku Vinicius
Hann talaði um slaka byrjun sína á nýju tímabili þar sem Vinícius er aðeins kominn með eitt mark og þrjár stoðsendingar í tólf leikjum með Real Madrid, sem er ólíkt honum. Mikið hefur verið rætt um lægðina sem Vinícius er í og einhverjir sem óttast að bensíntankurinn sé búinn.
„Heimsmeistaramótið hafði mikil áhrif. Við fengum slæman skell og duttum snemma út, svo ég ákvað að njóta mín í fríinu. Ég hvíldi mig og varði tíma með fjölskyldunni og æfði talsvert minna en ég hef gert síðustu sumur. Þetta hefur haft áhrif á formið mitt í haust en það voru fleiri þættir sem spiluðu inn í, eins og til dæmis samningsmálin mín," sagði Vinícius, sem skrifaði undir nýjan samning við Real í ágúst eftir háværa orðróma um möguleg félagaskipti þegar hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi.
„Samningsmálin voru erfið fyrir hausinn á mér í sumar. Ég er mennskur og ég geri mistök, en ég hef mikinn metnað og reyni alltaf að bæta mig og læra eitthvað nýtt um fótbolta. Ég er 26 ára gamall og verð líka að fá að njóta lífsins stundum.
„Það má heldur ekki gleyma því að tímabilið er langt. Ég hef alltaf verið til staðar þegar liðið þarf á mér að halda á mikilvægum stundum. Á síðustu leiktíð var ég bara kominn með 5 mörk í desember en endaði svo tímabilið með 20. Ég er að komast aftur í mitt besta form, tímabilið er langt."
Vinícius hefur ekki verið að spila upp á sitt besta með Real Madrid en markaskorunin með brasilíska landsliðinu hefur ekki látið standa á sér. Vinícius var með 6 landsliðsmörk í 39 leikjum áður en Carlo Ancelotti var ráðinn sem þjálfari og hefur tekist að skora 13 mörk í 20 leikjum undir stjórn Ítalans.
„Ég elska Ancelotti, hann hefur haft svo mikil áhrif á minn feril, á Real Madrid og allan fótboltaheiminn. Hann hefur alltaf varið mig og leiðbeint mér eftir bestu getu."
Vinícius skoraði þrennu á tólf mínútna kafla í fyrri hálfleiknum gegn Singapúr.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |