Fotbolti.net
16.11.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Arsenal umræðan hafði áhrif á spilamennsku Vinicius

Vinicius Jr framherji Real Madrid.

Vinicius Jr framherji Real Madrid.

Canon

Mynd: EPA

Vinicius Jr, framherji Real Madrid, segir að miklar umræður og vangaveltur um möguleg félagaskipti í sumar hafi haft neikvæð áhrif á frammistöðu sína í upphafi tímabils.

Brasilíski landsliðsmaðurinn hefur aðeins skorað eitt mark og lagt upp þrjú í tólf leikjum fyrir Jose Mourinho og lið hans á þessu tímabili.
Hann var orðaður við Arsenal í sumar, þegar hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum, en hann framlengdi síðan samning sinn við spænska stórveldið.

„Ég held ekki að ég hafi undirbúið mig eins vel og ég hefði getað gert eftir HM. Að vera slegnir út svona snemma var högg fyrir okkur. Ofan á allt þetta kom samningsstaðan og mörg félög sýndu áhuga síðasta sumar. Mér fannst þetta yfirþyrmandi," segir Vinicius.

Vinicius fékk rautt spjald fyrir ofbeldisfulla hegðun í október þegar hann togaði í hár miðjumanns Villarreal, Nathan Saliba, sem leiddi til fjögurra leikja banns. Í fjarveru hans nýtti Yan Diomande tækifærið á vinstri kantinum til fulls og hefur skorað fjögur mörk.

Real Madrid er í öðru sæti La Liga, þremur stigum á eftir erkifjendum sínum Barcelona, ??og tekur á móti Celta Vigo á laugardaginn.
Arsenal umræðan hafði áhrif á spilamennsku Vinicius
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.