17.11.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vinícius setti þrennu á tólf mínútum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Vinícius Júnior var í byrjunarliðinu í stórsigri í vináttulandsleik gegn Singapúr í dag.
Vinícius, sem hefur átt erfitt uppdráttar með Real Madrid á tímabilinu, gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins á tólf mínútna kafla í fyrri hálfleik.
Fyrsta markið skoraði hann eftir hápressu Brasilíu, það næsta einn gegn auðu marki eftir skyndisókn og þriðja markið setti hann inn af stuttu færi.
Bruno Guimaraes, Endrick og Estevao lögðu mörkin upp og áttu Endrick, Estevao og Rayan allir eftir að skora í sjö marka stórsigri.
Fleiri vináttulandsleikir fóru fram þar sem Diego Gómez miðjumaður Brighton lagði bæði mörkin upp í sigri Paragvæ gegn Japan.
Son Heung-min og Lee Kang-in voru þá í byrjunarliði Suður-Kóreu sem lagði Katar að velli og er hægt að sjá önnur úrslit hér fyrir neðan.
Singapúr 0 - 7 Brasilía
0-1 Vinicius Junior ('9)
0-2 Vinicius Junior ('15)
0-3 Vinicius Junior ('21)
0-4 Endrick ('31)
0-5 Estevao ('51)
0-6 Rayan ('65)
0-7 R. Suhaimi ('74, sjálfsmark)
Japan 1 - 2 Paragvæ
0-1 Juan Caceres ('2)
0-2 Gustavo Gomez ('40)
1-2 Shio Fukuda ('85)
Katar 0 - 1 Suður-Kórea
0-1 Oh Se-hun ('43)
Líbanon 0 - 0 Palestína
Kína 2 - 2 Barein
Kirgistan 2 - 1 Víetnam
Jemen 1 - 2 Malasía
Tahítí 3 - 3 Cooks-eyjar
Sameinuðu arabísku furstadæmin 4 - 2 Sýrland
Sádi-Arabía 1 - 2 Úsbekistan