Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   lau 25. nóvember 2023 10:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói Skúli spáir í 13. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Styttist í aðventuna.
Styttist í aðventuna.
Mynd: Úr einkasafni
Kári sagður klár í eðli yfir leik Sheff U og Bournemouth.
Kári sagður klár í eðli yfir leik Sheff U og Bournemouth.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Ásgeir Þór Magnússon fékk að fara fram eftir að þessi mynd var tekin.
Ásgeir Þór Magnússon fékk að fara fram eftir að þessi mynd var tekin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enska úrvaldsdeildin fer aftur af stað í hádeginu eftir landsleikjahlé og fer þrettánda umferðin af stað með trompi. Risaleikur á Etihad þar sem Liverpool heimsækir meistarana í Manchester City.

Gregg Ryder spáði í síðustu umferð fyrir hlé og var með þrjá rétta. Jóhann Skúli Jónsson, þáttarstjórnandi Svona var Ísland hlaðvarpsþáttanna er spámaður umferðarinnar. Nýjasti þáttur Jóa Skúla, sem fjallar um árin 1988-1990 á Íslandi og hjá íslenska landsliðinu, kom út í gær og má finna á öllum hlaðvarpsveitum.

City 1 - 3 Liverpool (í dag 12:30)
Liverpool fá alltaf á sig mark og Jeremy Doku fagnar því að vera laus úr Fantasy liðinu mínu og setur fyrsta mark leiksins áður en Liverpool valta yfir leikinn í The Steve Mcmanaman Derby.

Burnley 0 - 3 West Ham (í dag 15:00)
Það mun sennilega vanta Bowen en það skiptir engu máli í það sem gárungarnir kalla einn virtasta derby slag Bretlandseyja, The Junior Stanislas Derby.

Luton 0 - 1 Crystal Palace (í dag 15:00)
Stefán Pálsson samþykkti nýlega vinabeiðni frá mér á Fésbókinni og lít ég nú á hann sem einn af mínum bestu vinum og þess vegna ná Luton stigi í derby sem einhver má segja mér hvað heitir. Tahith Chong verður viljugur og svo er ég auðvitað mjög mikill Lockyer maður. Eða nei mér er reyndar því miður fyrir Stefán að snúast hugur. Þeir tapa þessum leik, 0-1. Hversu margir ætli hafi namedroppað Stefán.

Newcastle 2 - 0 Chelsea (í dag 15:00)
Það vantar ennþá eitthvað í Chelsea, ca 250 milljónir punda í viðbót. Norðrið er að rísa, ætli Gregg Ryder setji ekki bæði í The Damien Duff Derby.

Notthm Forest 1 - 1 Brighton (í dag 15:00)
Jafntefli í The Jesse Lingard Derby. Forest eru vanmetnir og eru með nýstofnaðan stuðningsmanna klúbb á Íslandi þar sem kóngurinn, Þorkell Diego, var mættur til að mynda stjórnarsáttmála með þjáningar bræðrum sínum. Svo held ég að de Zerbi með sína 2005 hárgreiðslu gæti verið mesta ofmat knattspyrnunnar frá því Þorgrímur Þráinsson setti markmanninn Ásgeir Þór Magnússon á vinstri kantinn í bikarleik í 2. flokki því hann var með svo mikla hlaupagetu. Frábær drengur samt, Ásgeir… og reyndar Þorgrímur líka.

Sheff U 0 -2 Bournemouth (í dag 15:00)
Sheff U, fyrrum draumaklúbbur Kára Árnasonar, munu ekki taka stig hér frekar en fyrri daginn. Þetta er ekkert eðlilega leiðinleg derby umferð þegar þú leggur þetta svona fyrir framan mig. Eða heyrðu auðvitað, The Aaron Ramsdale Derby! Ég hendi sennilega í eðlu yfir þessum og býð Kára yfir.

Brentford 1 - 2 Arsenal (í dag 17:30)
Hvað er betra á laugardagseftirmiðdegisskammdegisþunglyndinu heldur en að tylla sér fyrir framan skjáinn og sjá Mikael Arteta brjóta allar þær reglur sem nokkurn tímann hafa verið settar í tengslum við boðvanginn. Mbeumo minnkar muninn í The Ólafur Ingi Skúlason Derby.

Spurs 2 - 2 Aston Villa (á morgun)
Gæti líka alveg séð Spurs tapa þessum líka, mate. Matthew Etherington verður heiðursgestur og býður Jimmy Bullard og Helga Val á leikinn í sínum eigin derby.

Everton 0 - 3 Man Utd (á morgun)
Ef United vinna ekki þennan leik verður Erik ten Hag rekinn um jólin, ég er að sjá sennilega 19. desember. We’ve been here before. Held hann kaupi sér gálgafrest í The Louis Saha Derby.

Fulham 2 - 1 Wolves (mánudagskvöld)
Ég er gríðarlega mikill Fulham maður í mér og hef alltaf verið. Besti vinur minn, sem jafnframt er einn virtasti viðskiptaráðgjafi þjóðarinnar í tengslum við sjávarútveginn, átti einu sinni Fulham treyju sem hann lánaði mér og ég held ég hafi stolið henni. Það var því miður ekki treyjan þar sem Kofinn var sponsor, eins og virtasti skraddari þjóðarinnar Egill Ásbjarnarson kallar Pizza Hut, sem er ein af mínum uppáhalds treyjum.
Tom Cairney (köngurinn) mun leika á als oddi í the Raul Jimenez Derby.

Fyrri spámenn:
Aron Elís Þrándarson (7 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Tómas Þór Þórðarson (6 réttir)
John Andrews (6 réttir)
Ægir Þór Steinarsson (4 réttir)
Sigurður Heiðar Höskuldsson (4 réttir)
Stefán Árni Pálsson (4 réttir)
Jón Kári Eldon (4 réttir)
Gregg Ryder (3 réttir)
Tómas Steindórsson (3 réttir)
Emil Atlason (3 réttir)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Enski boltinn - Gunnar í skýjunum með magnað gengi
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp