Fotbolti.net
27.10.26 - 12:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2026

Agla María Albertsdóttir og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir.

Agla María Albertsdóttir og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Í Uppbótartímanum var opinberað val á úrvalsliði ársins í Bestu deild kvenna 2026.

Í Uppbótartímanum var sérstakt uppgjör og tilkynnt hver er leikmaður ársins, þjálfari ársins og efnilegasti leikmaðurinn. Einnig voru valin vonbrigði ársins.
Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið
TENGT EFNI

Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið



Lið ársins er sóknarsinnað. Það er stillt upp í 3-4-3.

Bridgette Skiba - Stjarnan
Bandaríski markvörðurinn var að spila sitt annað tímabil í Garðabænum og var enn betri í sumar en hún var í fyrra. Hún var sá markvörður sem kom í veg fyrir flest mörk samkvæmt prevented goals tölfræðinni og varð einnig flest skot allra markvarða í deildinni.

Deja Sandoval - FH
Annað árið í röð er Deja Sandoval að komast í lið ársins hér á Fótbolta.net. Deja er bandarískur varnarmaður sem fædd er árið 2001 og kom til FH frá FHL fyrir tímabilið í fyrra. Hún hefur verið virkilega góð fyrir Fimleikafélagið og er til dæmis með flest inngrip (e. interceptions) í Bestu deildinni í sumar. Deja átti líka flestar sendingar í deildinni.

Arna Sif Ásgrímsdóttir - Þór/KA
Þór/KA náði að bjarga sér á lokadegi tímabilsins með sigri í Víkinni og þar spilaði Arna Sif virkilega stóra rullu. Hún fór ekkert sérlega hratt af stað og það ekki skrítið enda að koma til baka eftir meiðsli og barnsburð. Eftir því sem leið á tímabilið var hún hins vegar stórkostleg og skorar hún hátt í flestallri varnartölfræði. Hún fór í næstflest skallaeinvígi í deildinni, langflest í sínum eigin teig, og vann tæplega 67% þeirra sem er frábærlega gert.

Kristín Dís Árnadóttir
Besti varnarmaðurinn í besta varnarliði deildarinnar í sumar. Breiðablik fékk á sig fæst mörk í deildinni í sumar og spilaði Kristín Dís þar lykilhlutverk. Hún var ein af þremur hafsentum í vörn Breiðabliks og var sterk í flestöllum þáttum leiksins. Breiðablik missti marga stóra pósta fyrir tímabilið og það var algjört lykilatriði að halda Kristínu sem kann að vinna titla.

Ingibjörg Magnúsdóttir - FH
Eftir að Thelma Karen Pálmadóttir, efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra, fór til sænska félagsins Häcken þá ákvað Ingibjörg, sem er fædd árið 2009, að koma inn og taka við keflinu. Gríðarlega spennandi leikmaður sem var í fjórða sæti yfir þá leikmenn sem komu að flestum mörkum í Bestu deildinni í sumar, en hún skoraði sex mörk og lagði upp níu er hún tók stærra hlutverk í FH-liðinu í sumar. Alls ekki ólíklegt að hún fari erlendis í vetur.

Allison Clark - ÍBV
Bandaríski miðjumaðurinn fór hamförum með ÍBV í Lengjudeildinni í fyrra og hún hélt áfram uppteknum hætti í Bestu deildinni í sumar. Hún kom að tíu mörkum fyrir ÍBV í sumar og var auk þess gríðarlega sterk í baráttunni á miðsvæðinu. Hún fór til dæmis í flest skallaeinvígi allra leikmanna í deildinni í sumar og vann tæplega 42% þeirra, sem er vel gert hjá miðjumanni.

Katie Cousins - Þróttur R.
Það er auðvelt að velta því fyrir sér hvað hefði gerst ef Katie Cousins hefði spilað allt tímabilið í Laugardalnum. Hún kom um mitt tímabil og breytti öllu fyrir Þróttara. Hún spilaði mikilvæga rullu í því að Þróttarar unnu sinn fyrsta stóra titil í sögunni er þær urðu bikarmeistarar og svo hjálpaði hún liðinu að bæta frammistöðu sína í deildinni til muna. Hefði gert stórt tilkall að vera leikmaður ársins ef hún hefði spilað með frá byrjun.

Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik
Líf var ein af þeim ungu leikmönnum sem tóku stærra hlutverk í liði Breiðabliks í sumar og hún tók það af miklum krafti. Gríðarlega fjölhæfur leikmaður sem getur spilað út um allan völl en hún spilaði í sumar sem hægri og vinstri vængbakvörður, sem kantmaður, sem tía og líka sem sóknarmaður. Hún leysti öll þessi hlutverk vel og kom að tíu mörkum fyrir Blikaliðið sem varð Íslandsmeistari. Hún spilaði þá sinn fyrsta A-landsleik á dögunum.

Ída Marín Hermannsdóttir - FH
Það er ekki að ástæðulausu að Ída Marín var kosin leikmaður ársins af leikmönnum núna á dögunum. Hún var gjörsamlega stórkostleg áður en hún fór út í atvinnumennsku til Svíþjóðar í sumarglugganum. Eins og með Katie, þá er auðvelt að velta fyrir sér hvað hefði orðið ef Ída Marín hefði klárað tímabilið með FH. Í Uppbótartímanum í gær sögðu bæði Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson að FH hefði orðið Íslandsmeistari ef Ída hefði verið allt tímabilið með liðinu.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir - Breiðablik
Fyrir tímabilið var sett mikil pressa á Ásu, eins og hún er kölluð, eftir að hún hafði farið með himinskautum á undirbúningstímabilinu. Hún stóðst þá pressu að mörgu leyti og var sá leikmaður í deildinni í sumar sem kom að flestum mörkum, 25 talsins. Hún endaði jafnframt sem markahæsti leikmaður deildarinnar. Frábært tímabil hjá Ásu og framtíðin er klárlega hennar.

Agla María Albertsdóttir - Breiðablik
Fyrirliði Blikaliðsins átti stórkostlegt tímabil og endaði sem stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Hún er í raun alltof góð til að spila í þessari deild og ætti með réttu að spila í góðri deild erlendis. Hún gerði gríðarlega mikið fyrir Blikaliðið sem kannski fólk tók ekki endilega eftir og átti til að mynda langflestar lykilsendingar í deildinni, 37 talsins.

Varamannabekkur:
Guðný Geirsdóttir - ÍBV
Telma Steindórsdóttir - Stjarnan
Natasha Anasi - Grindavík/Njarðvík
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir - FH
Olga Sevcova - ÍBV
Helena Errington - FH
Alisson Grace Lowrey - ÍBV
Alda Ólafsdóttir - Fram
Taylor Marie Hamlett - Fram

Sjá einnig:
Sterkasta lið ársins og önnur verðlaun í Bestu deild kvenna
TENGT EFNI

Sterkasta lið ársins og önnur verðlaun í Bestu deild kvenna


Lið ársins og önnur verðlaun í Bestu deild kvenna 2024
TENGT EFNI

Lið ársins og önnur verðlaun í Bestu deild kvenna 2024


Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2023
TENGT EFNI

Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2023


Lið ársins í Bestu deild kvenna 2022
TENGT EFNI

Lið ársins í Bestu deild kvenna 2022

Bridgette Nicole Skiba.

Bridgette Nicole Skiba.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Deja Sandoval.

Deja Sandoval.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Sif Ásgrímsdóttir.

Arna Sif Ásgrímsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristín Dís Árnadóttir.

Kristín Dís Árnadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg Magnúsdóttir.

Ingibjörg Magnúsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ally Clark.

Ally Clark.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Katie Cousins.

Katie Cousins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líf Joostdóttir van Bemmel.

Líf Joostdóttir van Bemmel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ída Marín Hermannsdóttir.

Ída Marín Hermannsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María Albertsdóttir.

Agla María Albertsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.