Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
banner
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
mánudagur 22. apríl
Besta-deild kvenna
sunnudagur 21. apríl
Besta-deild karla
Besta-deild kvenna
laugardagur 20. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 20. apríl
Engin úrslit úr leikjum í dag
fös 28.apr 2023 23:30 Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða í Lengjudeild kvenna: 6. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeild kvenna í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð í deildinni. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið. Liðin fengu stig frá 1-9 en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Gróttu er spáð sjötta sæti deildarinnar eftir að hafa komist upp úr 2. deild í fyrra.

Gróttu er spáð sjötta sæti en þær eru að koma upp sem nýliðar.
Gróttu er spáð sjötta sæti en þær eru að koma upp sem nýliðar.
Mynd/Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Pétur Rögnvaldsson, þjálfari Gróttu.
Pétur Rögnvaldsson, þjálfari Gróttu.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ariela Lewis og Hannah Abraham.
Ariela Lewis og Hannah Abraham.
Mynd/Grótta / Eyjólfur Garðarsson
Tinna er fyrirliði Gróttu.
Tinna er fyrirliði Gróttu.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fyrir leik á undirbúningstímabilinu.
Fyrir leik á undirbúningstímabilinu.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Þegar sætinu í úrvalsdeild var fagnað.
Þegar sætinu í úrvalsdeild var fagnað.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hvar endar Grótta í sumar?
Hvar endar Grótta í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6. Grótta, 84 stig
7. Augnablik, 57 stig
8. Grindavík, 44 stig
9. Fram, 40 stig
10. KR, 38 stig

Lokastaða í fyrra: Eftir að hafa fallið á markatölu úr Lengjudeildinni sumarið 2021 þá komst Grótta beinustu leið aftur upp með því að lenda í öðru sæti 2. deildar síðasta sumar. Grótta var í þriðja sæti deildarinnar áður en henni var skipt í efri og neðri helming. Í úrslitakeppninni voru Gróttukonur sterkar og náðu að enda einu stigi fyrir ofan Völsung.

Þjálfarinn: Pétur Rögnvaldsson tók einn við sem aðalþjálfari Gróttu eftir sumarið 2021. Hann var aðstoðarþjálfari 2019 og 2020 en þjálfaði svo liðið með Magnúsi Erni Helgasyni sumarið 2021. Pétur er á 30. aldursári en hefur þjálfað hjá Gróttu í um áratug og þekkir félagið inn og út, enda uppalinn þarna. Hann stýrði liðinu beint aftur upp og verður á hliðarlínunni í Lengjudeildinni í sumar.

Styrkleikar: Gróttuliðið skoraði mest allra liða í 2. deild í fyrra og héldu uppteknum hætti í Lengjubikarnum í vetur. Það eru margar í liðinu sem geta skorað mörk svo það verður ekki einfalt að verjast Gróttu í sumar. Það er sömuleiðis styrkleiki hjá Seltirningum að sterkur kjarni hefur spilað saman í mörg ár og efnilegar stelpur koma reglulega inn í liðið. Það virðist vera stemning í Gróttu og umgjörð góð í kringum félagið.

Veikleikar: Varnarleikur Gróttu er stórt spurningamerki en liðið hefur misst nánast alla varnarlínuna og markvörðinn frá því í fyrra. Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir, sem hefur verið lykilleikmaður í vörn Gróttu í mörg ár, er í barneignarleyfi. Þá spilar miðvörðurinn Mist Þormóðsdóttir Grönvold ekki með liðinu í sumar, Edda Björg Eiríksdóttir er hætt og Bjargey Sigurborg Ólafsson er flutt til Bandaríkjanna.

Lykilmenn: Ariela Lewis, María Lovísa Jónasdóttir og Tinna Jónsdóttir.

Fylgist með: Margrét Lea Gísladóttir, sem er fædd árið 2005, var lykilleikmaður í U17 ára landsliðinu áður en hún sleit krossband í ársbyrjun 2022. Margrét Lea er snúin aftur eftir endurhæfingu og spilar með Gróttu á láni frá Breiðabliki í sumar. Um er að ræða orkumikinn miðjumann sem verður gaman að fylgjast með í Lengjudeildinni.

Komnar
Birgitta Hallgrímsdóttir frá Grindavík
Cornelia Baldi Sundelius frá KR
Hannah Abraham frá Bandaríkjunum
Lilja Lív Margrétardóttir frá KR
Margrét Lea Gísladóttir frá Breiðabliki (á láni)
Rakel Lóa Brynjarsdóttir frá Stjörnunni

Farnar
Bjargey Sigurborg Ólafsson til Bandaríkjanna
Edda Líney Baldvinsdóttir til Sindra
Kayla Thompson til Mexíkó
Marwa El Mrizak til Noregs

Tökum því bara sem hrósi
„Þegar maður pælir aðeins í því þá kannski er okkur spáð örlítið ofar en ég hefði haldið, en við tökum því bara sem hrósi að okkur sé spáð sjötta sætinu sem nýliðar í deildinni," segir Pétur Rögnvaldsson, þjálfari Gróttu, þegar hann er spurður út í spánna.

„Annars hefur maður ekki mikið verið að stilla deildinni upp í huganum; ég held líka bara að það sé mjög erfitt að spá fyrir Lengjudeildinni í sumar. Liðin eru ennþá að styrkja sig og jafnvel einhverjir leikmenn hjá liðunum sem verða í stórum hlutverkum sem eru ennþá ekki búnar að ná að spila leik. En líklega kemur þetta í ljós í sumar hvernig þetta fer."

Líkt og áður hefur komið fram þá komst Grótta upp úr 2. deild síðasta sumar. Hvernig metur Pétur það tímabil?

„Síðasta tímabil var að mestu leyti gott. Við náðum okkar markmiðum sem var að komast aftur í Lengjudeildina. Ég er líka á þeirri skoðun að hópurinn hafði gott af því að taka tímabil í 2. deildinni þannig að ég held að liðið komi tilbúnara til leiks í Lengjudeildina í þetta skiptið."

„Undirbúningstímabilið fyrir tímabilið í ár hefur gengið vel, eða bara svona eins og gengur og gerist. Góð frammistaða inn á milli og fín úrslit í mörgum af þessum leikjum. Við þurfum samt sem áður að fá aðeins meiri stöðugleika í okkar frammistöðu."

Það hafa verið nokkrar breytingar á hópnum frá síðasta tímabili en þjálfarateymið er sátt með hópinn.

„Já, það hafa verið þó nokkrar breytingar. Það eru mikið af leikmönnum sem hafa verið í stórum hlutverkum hjá okkur síðastliðin ár sem eru hættar, að minnsta kosti í bili, en þessi Gróttukjarni sem við höfum treyst mikið á seinustu ár þrátt fyrir ungan aldur er ennþá til staðar og við búumst við miklu frá þeim stelpum í sumar."

„Við höfum svo bætt við okkur nokkrum leikmönnum sem við teljum styrkja hópinn, þannig við í þjálfarateyminu erum mjög ánægð með hópinn."

Pétur býst við jafnri deild í sumar. „Eins og ég nefndi áðan þá held ég að deildin verði bara jöfn. Vetrarmótin eru að gefa einhverja mynd, en ég tel samt sem áður að liðin séu töluvert langt frá því að vera með fullmótaða hópa í þeim, sérstaklega framan af. Þannig ég held þetta verði spennandi og skemmtilegt, og mörg lið eigi eftir að koma á óvart."

Fyrstu þrír leikir Gróttu:
2. maí, Víkingur R. - Grótta (Víkingsvöllur)
13. maí, Grótta - Afturelding (Vivaldivöllurinn)
17. maí, Augnablik - Grótta (Kópavogsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner