Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   þri 28. apríl 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti
Aron Sigurðarson er í þriðja sinn í röð í liði umferðarinnar.
Aron Sigurðarson er í þriðja sinn í röð í liði umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már Ómarsson.
Elías Már Ómarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík vann KA.
Keflavík vann KA.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Það var mikið skorað í fjórðu umferð Bestu deildarinnar. KR-ingar eru með fullt hús á toppnum eftir 4-2 sigur á FH þar sem Aron Sigurðarson hélt uppteknum hætti, skoraði tvö og lagði upp eitt.

Maður leiksins var hinsvegar Amin Cosic sem fór illa með andstæðinga sína trekk í trekk í leiknum.



Íslandsmeistarar Víkings eru tveimur stigum á eftir KR en þeir unnu 4-0 sigur á ÍA þar sem öll mörkin komu í seinni hálfleik. Elías Már Ómarsson heldur áfram að vera funheitur, skoraði tvö mörk og átti stoðsendingu. Gunnar Vatnhamar var öflugur í vörninni og Daníel Hafsteinsson á miðjunni.

Valsarar hafa unnið þrjá leiki í röð en þeir unnu 4-2 útisigur gegn Stjörnunni þar sem Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvö mörk og átti stoðsendingu.

Breiðablik fann loksins taktinn sóknarlega og vann 4-0 sigur gegn Þór. Óli Valur Ómarsson svaraði gagnrýnisröddum með því að skila marki og stoðsendingu. Anton Ari Einarsson var hrikalega öflugur í markinu.

Framarar rúlluðu yfir Eyjamenn 5-1. Þorri Stefán Þorbjörnsson var meðal markaskorara Fram og var valinn maður leiksins.´

Umferðin hófst á sunnudag þegar Stefan Ljubicic skoraði sigurmark Keflavíkur og Axel Ingi Jóhannesson er einnig í liði umferðarinnar. haraldur Freyr Guðmundsson er þjálfari umferðarinnar.

Fyrri úrvalslið:
   24.04.2026 08:00
Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja

   18.04.2026 00:25
Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur

   13.04.2026 00:10
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa




Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner