Þriðja umferð Bestu deildarinnar að baki en KR er nú eina liðið með fullt hús stiga. KR vann magnaðan 6-2 útisigur gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari umferðarinnar, Aron Sigurðarson skoraði tvö og var maður leiksins og hinn ungi Alexander Rafn Pálmason skoraði eitt af mörkunum og fær sæti í Sterkasta liðinu.
Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari umferðarinnar, Aron Sigurðarson skoraði tvö og var maður leiksins og hinn ungi Alexander Rafn Pálmason skoraði eitt af mörkunum og fær sæti í Sterkasta liðinu.
Íslandsmeistarar Víkings unnu 3-2 sigur gegn Stjörnunni í stórleik umferðarinnar. Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk fyrir Víking og er leikmaður umferðarinnar.
Valsmenn hrukku í gír og unnu 3-0 sigur gegn ÍBV þar sem Tryggvi Hrafn Haraldsson var valinn maður leiksins en hann átti tvær stoðsendingar. Adam Ægir Pálsson og Hólmar Örn Eyjólfsson skoruðu báðir í leiknum.
Þórsarar unnu baráttusigur gegn Fram 1-0 í sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu. Sebastian Haugland skoraði glæsilegt sigurmark, Yann Emmanuel Affi var klettur í vörninni og Aron Birkir Stefánsson markvörður hélt hreinu og átti alvöru hetjuvörslu.
Miðvörðurinn ungi Davíð Helgi Aronsson var valinn maður leiksins fyrir Keflavík í markalausu jafntefli gegn Breiðabliki í fyrsta grasleik sumarsins. Þá var Haukur Andri Haraldsson maður leiksins í 1-1 jafntefli ÍA og KA í Akraneshöllinni.
Sjá einnig:
13.04.2026 00:10
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa
18.04.2026 00:25
Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur
Adam Ægir, Hörður Ingi og Hólmar Örn skoruðu mörkin er Valsmenn gengu frá FH í fyrri hálfleik! ???????????? #bestadeildin pic.twitter.com/IXTs2tf3Om
— Besta deildin (@bestadeildin) April 23, 2026
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |






