Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   mán 13. apríl 2026 00:10
Elvar Geir Magnússon
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa
Gylfi í baráttunni í opnunarleiknum.
Gylfi í baráttunni í opnunarleiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Fyrsta umferð Bestu deildarinnar er að baki og eins og venjan er þá opinberum við Sterkasta lið umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar.

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði jöfnunarmark Íslandsmeistara Víkings gegn Breiðabliki í opnunarleiknum sem endaði 1-1. Ágúst Orri Þorsteinsson lagði upp mark Blika og var besti leikmaður Kópavogsliðsins. Gunnar Vatnhamar er í vörn úrvalsliðsins.

Emil Atlason er leikmaður umferðarinnar eftir að hafa skorað tvö mörk í 3-2 útisigri Stjörnunnar gegn KA. Guðmundur Kristjánsson kemst einnig í lið umferðarinnar.



Christian Greko Jakobsen skoraði fyrir nýliða Þórs sem unnu 2-1 útisigur gegn Val. Ungstirnið Einar Freyr Halldórsson lék frábærlega fyrir Þór en hann er 17 ára gamall. Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari umferðarinnar.

Þrátt fyrir að hafa verið í tapliði þá var Stefan Ljubicic valinn maður leiksins þegar KR vann Keflavík 3-2. Hann skoraði tvö mörk í leiknum. Marcel Zapytowski markvörður ÍBV varði vítaspyrnu þegar Eyjamenn gerðu 1-1 jafntefli við FH.

Hinn ungi Markús Páll Ellertsson skoraði tvívegis í 3-3 jafntefli gegn Fram. Framarar jöfnuðu í lokin en varnarmaðurinn Sigurjón Rúnarsson var meðal markaskorara þeirra bláu.
Slapp
banner