Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
„Ótrúlega góður og sýndi gæði," stendur í skýrslu Fótbolta.net um Tryggva Hrafn Haraldsson í 4-2 útisigri Vals gegn Stjörnunni í gær. Valsmenn hafa unnið þrjá leiki í röð og Tryggvi var í stuði í Garðabænum.
Hann skoraði tvö mörk og átti stoðsendingu en hefði í raun átt að skora tvöfalt fleiri mörk því hann fór illa með góð færi í lok leiks. Hann er Sterkasti leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.
Hann skoraði tvö mörk og átti stoðsendingu en hefði í raun átt að skora tvöfalt fleiri mörk því hann fór illa með góð færi í lok leiks. Hann er Sterkasti leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 4 Valur
„Mér er mjög létt, það er rétt metið hjá þér. Við vorum að verjast mikið og ég fæ þarna tvö góð færi til að gera út um leikinn og ég hefði átt að gera það. Þá verður maður náttúrulega stressaður,“ sagði Tryggvi víð Sýn eftir leikinn.
„Það er stutt á milli í þessu, maður var búinn að skora tvö en þarna var mjög stutt í að maður yrði skúrkur þannig að ég er mjög sáttur að við sigldum þessu heim."
Tryggvi Hrafn átti stórleik í Garðabænum! ???????? #bestadeildin pic.twitter.com/uPZcq77FIq
— Besta deildin (@bestadeildin) April 27, 2026
Sterkustu leikmenn:
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)




