Víðir Reynisson hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra hefur beðist afsökunar á að hann hafi sagt á fréttamannafundi í dag að fjögur íþróttafélög hafi verið með skipulagðar æfingar þrátt fyrir bann þess efnis vegna kórónuveirunnar.
UMFÍ birti frétt í síðustu viku þar sem greint er frá því að íslenskt íþróttafólk hefur verið að æfa saman í laumi þrátt fyrir strangt samkomubann yfirvalda vegna kórónuveirunnar.
„Ég er fúll," sagði Víðir á fréttamannafundi í dag. „Við fengum helling af tilkynningum síðastliðna nótt og í dag, bæði þar sem verið var að benda á ákveðna staði þar sem eitthvað hafði verið að gerast. Svo erum við alla vega með fjórar tilkynningar varðandi starfsemi íþróttafélaga þar sem voru æfingar í gangi."
„Við erum með upplýsingar um að það hafi verið 50 manna æfing hjá íþróttafélagi. Það er alveg ótrúlegt."
Víðir tjáði sig á Twitter í kvöld þar sem hann baðst afsökunar og sagði að um rangar upplýsingar hefði verið að ræða.
Ég sagði strax í upphafi á þess Covid-19 verkefni að ég myndi gera mistök. Í dag gerði ég mistök. Ég hélt því fram að 4 íþróttafélög hefðu verið með æfingar. Það var rangt og ég biðst afsökunar á því. Fullt af góðu fólki sem fékk að heyra það í dag að óþörfu. #sorry #áframþið
— Víðir Reynisson (@VidirReynisson) March 29, 2020
Sjá einnig:
Víðir fúll - Fjórar tilkynningar um æfingar íþróttafélaga
Breiðablik neitar því að hafa brotið fyrirmæli um æfingabann
Athugasemdir