Gylfi mætti fyrr út og æfði einn: Ekkert það skemmtilegasta í heimi
Gylfi Þór Sigurðsson er klár í slaginn fyrir leikina tvo í Þjóðadeildinni. Gylfi, sem er leikmaður Víkings, hefur dvalið á Spáni síðustu rúmu vikuna, hvíldi sig eftir tímabilið á Íslandi, spilaði golf og æfði svo einn síðustu dagana áður en landsliðið kom saman.
Miðjumaðurinn ræddi við Fótbolta.net eftir æfingu landsliðsins í dag.