10.11.26 - 17:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá La FincaStefán mjög stoltur af bróður sínum - „Getur náð mjög langt"
Auglýsing

Stefán Teitur Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þórður Þorsteinsson Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson ræddi við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins á Spáni í dag.
Hópurinn kom saman í gær og heldur til Búlgaríu á morgun og landsliðið mætir svo Búlgurum á föstudag. Seinni leikur landsleikjaverkefnisins verður svo á heimavelli gegn Lúxemborg.

Í viðtalinu var Stefán spurður út í bróður sinn, Þórð, sem var valinn dómari ársins af leikmönnum Bestu deildar karla.
„Það er geggjað að sjá það, ég er mjög stoltur hvað hann hefur tekið mörg góð skref sem dómari og ég er líka sammála þessu. Mér finnst hann yfirburðadómari á landinu hvað varðar leikskilning á vellinum. Mér hefur fundist hann mjög góður í þeim leikjum sem ég hef séð hann dæma. Ef hann heldur áfram að taka réttu skrefin á þessu stigi þá held ég að hann geti náð mjög langt," segir Stefán.
Ert þú sjálfur góður dómari?
„Nei, ég hef engan áhuga á því að verða dómari eða neitt svoleiðis. Hann hefur alltaf verið miklu meira með stjórnina, enda elsta barnið. Það fylgir þessu oft," segir Stefán og brosir.
Í viðtalinu ræðir Stefán einnig um landsliðið og Hannover. Viðtalið má sjá í spilaranum efst.