Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 03. febrúar 2018 22:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mkhitaryan: Ég kann mjög vel við það hvernig Arsenal spilar
Mynd: Getty Images
Henrikh Mkhitaryan átti mjög góðan leik þegar Arsenal sigraði Everton örugglega 5-1 fyrr í dag, en hann lagði upp þrjú mörk.

„Ég er mjög ánægður með sigurinn, hann var sanngjarn. Nú þurfum við að halda áfram á sömu braut og vinna næsta leik og reyna að ná okkur í fleiri stig."

Mkhitaryan segist kunna vel við það hvernig Arsenal spilar.

„Sóknarleikurinn hjá okkur í dag var mjög góður, en við hægðum aðeins á ferðinni í seinni hálfleik. Ég kann mjög vel við það hvernig Arsenal spilar og ég ætla að halda áfram að gera mitt besta hér," sagði Armeninn Henrikh Mkhitaryan að lokum


Athugasemdir
banner
banner