Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 03. ágúst 2015 11:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Rafael á leið frá Manchester United til Lyon
Rafael
Rafael
Mynd: Getty Images
Rafael Da Silva, brasilíski varnarmaðurinn hjá Manchester United er kominn til Frakklands en hann er að ganga til liðs við Lyon.

Brassinn á eitt á eftir af samningi sínum við United og er hann ekki í plönum Louis van Gaal eftir að Matteo Darmian kom til liðsins.

Rafael er mættur í læknisskoðun en liðin eiga ennþá eftir að samþykja kaupverð.

Barkvörðurinn kom eins og flestir vita til United ásamt tvíburabróður sínum, Fabio, árið 2008 en Fabio leikur nú með Cardiff í Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner