Tindastóll og Dalvík/Reynir mætast í 2. deild karla klukkan 20:30 í leik sem átti að hefjast núna klukkan 20:00.
Ástæða seinkunarinnar er sprungið dekk á liðsrútu gestaliðsins.
Jóhann Már Kristinsson, aðstoðarþjálfari Dalvíkur/Reynis birti mynd af dekkjaskiptunum og greinilegt að dekkið var hvellsprungið.
Leikurinn á eftir er botnslagur þar sem Dalvík/Reynir vermir botnsæti deildarinnar með fimm stig á meðan Tindastóll er sæti ofar með sjö stig.
Athugasemdir