Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. janúar 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar gat ekki sleppt því að skjóta á Coutinho
Mynd: Getty Images
Neymar sendi skilaboð til landa síns, Philippe Coutinho eftir að hann var kynntur til leiks hjá Barcelona. Neymar gat líka ekki sleppt því að skjóta aðeins á vin sinn.

Um liðna helgi gerði Coutinho leikmaður Barcelona sem reif fram veskið fyrir hann. Börsungar borguðu Liverpool ríflega 140 milljónir punda fyrir þann brasilíska.

Sem stendur er aðeins einn leikmaður dýrari en Coutinho í fótboltasögunni er það Neymar sem var seldur frá Barcelona í sumar til PSG fyrir tæpar 200 milljónir punda.

Neymar og Coutinho eru góðir vinir og liðsfélagar í brasilíska landsliðinu. Eftir að Coutinho var kynntur sem leikmaður Barcelona birti Neymar mynd af honum á Instagram og skrifaði við hana: „Mjög ánægður fyrir þína hönd, óska þér alls hins besta og vona að þú verðir mjög ánægður."

Hann ákvað svo að grínast aðeins.

„Segðu mér, er þessi hárgreiðsla í tísku?" skrifaði Neymar.

Sjá einnig:
Suarez setti pressu á Coutinho að koma til Barcelona
Athugasemdir
banner
banner
banner