Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. september 2014 11:00
Elvar Geir Magnússon
Shaw, Blind og Falcao frumsýndir gegn QPR
Verður Phil Jones ekki með á sunnudag?
Verður Phil Jones ekki með á sunnudag?
Mynd: Getty Images
Phil Jones meiddist aftan í læri í 2-0 sigri Englands gegn Sviss í gær. Hann er á leið í skoðun hjá lækni í dag til að athuga hversu alvarleg meiðslin eru.

Óvíst er hvort hann verði orðinn klár á sunnudag þegar Manchester United mætir Queens Park Rangers.

Ný andlit munu sjást í liði Manchester United í leiknum.

Luke Shaw, Daley Blind og Radamel Falcao munu líklega spila sinn fyrsta leik fyrir United en þeir voru keyptir á háar upphæðir frá Southampton, Ajax og Monaco.

Shaw og Blind gætu byrjað leikinn en búist er við því að Falcao byri á bekknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner