Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. desember 2017 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Barcelona þarf að selja til að hafa efni á Coutinho
Verður Coutinho leikmaður Barcelona?
Verður Coutinho leikmaður Barcelona?
Mynd: Getty Images
Barcelona þarf að selja leikmenn til þess að hafa efni á Philippe Coutinho, leikmanni Liverpool.

Katalóníustórveldið gæti selt fimm leikmenn í janúar til þess að minnka launakostnaðinn hjá sér. Þetta segir Mundo Deportivo.

Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, vill ólmur fá Coutinho í sínar raðir sem fyrst, þrátt fyrir að Liverpool hafi lítinn sem engan áhuga fyrir því að selja hann síðastliðið sumar.

Liverpool hafnaði nokkrum tilboðum frá Katalóníu, en talið er að hæsta tilboðið hafi verið í kringum 114 milljónir punda!

Sögur hafa verið um að Barcelona ætli að gera enn hærra tilboð þegar félagaskiptaglugginn opnar í næsta mánuði.

Til þess að gera tilboðið mun Barcelona selja fimm leikmenn, en leikmennirnir sem um ræðir eru Javier Mascherano, Arda Turan, Aleix Vidal, Rafinha og Gerard Deulofeu.
Athugasemdir
banner
banner