Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. desember 2017 08:00
Fótbolti.net
Beint í mark jólatré í Jóa Útherja
Mynd: Beint í mark
Fótboltaspilið Beint í mark er til sölu í Jóa Útherja.

Af því tilefni var búið til jólatré úr spilunum sem eru þar til sölu.

Hér til hliðar má sjá mynd af trénu.

Opið alla helgina í Jóa útherja.

Í dag 11 - 17
Sunnudagur 13 - 16

Um Beint í mark
Spurningaspilið Beint í mark hefur slegið í gegn hjá þeim sem hafa prófað undanfarnar vikur. Spurningarnar eru styrkleikaskiptar sem auðveldar öllum að spila með – sófa sérfræðingum jafnt sem öðrum!

Tæplega þrjú þúsund spurningar eru í spilinu og er þeim skipt í fimm flokka.

Spurningunum er síðan skipt upp í þrjá styrkleikaflokka og því eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, ungir sem aldnir.

Ef mikill getumunur er á keppendum er auðvelt að breyta stigagjöfinni og jafna leikinn. Sá sem er fróðari um fótbolta er látinn svara spurningum úr flokki tvö eða þrjú á meðan aðrir sem minna vita svara spurningum úr auðveldasta flokknum, flokki 1. Allir fá 1 stig fyrir rétt svar.
Athugasemdir
banner
banner
banner