Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 10. apríl 2018 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ramos: Strákarnir verða að klára þetta
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos er í leikbanni fyrir seinni leik Real Madrid gegn Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Real vann fyrri leikinn örugglega á Ítalíu. Ramos segir að liðsfélagar sínir verði að mæta í leikinn til að sigra.

„Ég vildi óska þess að ég næði leiknum gegn Juventus. Andrúmsloftið í svona leik á heimavelli er magnað," sagði Ramos við opinbera vefsíðu Real.

„Hver einasti leikur er erfiður í Meistaradeildinni og við eigum 90 mínútur eftir gegn Juventus. Strákarnir verða að gefa allt í þetta, ég hef trú á þeim, þeir verða að klára þetta."

Bayern, Liverpool og Barcelona unnu sína leiki í síðustu viku en úrslitin ráðast ekki fyrr en í kvöld og á morgun.
Athugasemdir
banner
banner