Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   fim 10. ágúst 2017 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Katrín Ómars: Skoða varla töfluna
Katrín Ómarsdóttir.
Katrín Ómarsdóttir.
Mynd: Hilmar Þór Guðmundsson - KSÍ
Katrín Ómarsdóttir, leikmaður KR í Pepsi-deild kvenna, var sátt með 3-1 sigurinn á Grindavík í kvöld. Hún er komin til baka eftir meiðsli og var ánægð með sína innkomu.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  3 KR

Katrín spilaði allan leikinn í kvöld og gerði annað mark KR en liðið er í fallbaráttu.

„Þrjú stig í Grindavík er gott mál. Mér fannst við spila vel, fyrri hálfleikur á móti vindi og fengum fullt af skotum og hefðum getað verið 2-1 eða 3-1 yfir í hálfleik. Við vissum að við vorum að spila vel og að við myndum skora fleiri mörk," sagði Katrín við Fótbolta.net.

Fréttaritari Fótbolta.net benti á KR hefði verið betri aðilinn allan leikinn og hún var nokkuð sammála því.

„Já, var það? Við vorum með vindinn í baki og það hjálpaði og vorum betri aðilinn í fyrri hálfleik líka þegar við vorum á móti vindi. Mörkin gilda."

Eins og áður segir er KR í fallbaráttu en liðið er í áttunda sæti með 9 stig.

„Ég bara skoða varla töfluna en mér finnst gaman að vera komin til baka og við reynum að vinna eins marga leiki og við getum," sagði hún í lokin.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner