Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 12. ágúst 2017 12:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Joey Barton: Klopp er stór þýsk klappstýra
Klopp er ekki í uppáhaldi hjá Joey Barton.
Klopp er ekki í uppáhaldi hjá Joey Barton.
Mynd: Getty Images
Joey Barton segir að Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sé ofmetinn.

Barton var í viðtali fyrir leik Liverpool og Watford, sem er nú í gangi, á Talksport og ákvað þar að ræða um Klopp.

Barton, sem lék síðast með Burnley, setur Klopp ekki í sama gæðaflokk og stjóra eins og Pep Guardiola og Jose Mourinho.

„Hann er ekki titlaóður eins og Mourinho og Guardiola," sagði Barton um Klopp. „Við verðum að efast um hann."

„Hann er örugglega fínn náungi, en ég hef alltaf áhyggjur þegar ég sé hann æða upp og niður hliðarlínuna. Hann er eins og stór þýsk klappstýra fyrir Liverpool," sagði Barton enn fremur.

„Þú þarft meira til þess að vera stjóri hæsta gæðaflokki."

Hlustaðu á viðtalið í heild sinni með því að smella hér!
Athugasemdir
banner
banner
banner