Aðeins fjórar umferðir eru eftir af Pepsi-deild karla. Hér er listi yfir tíu leikmenn (í stafrófsröð) í deildinni sem gætu horfið af landi brott á braut atvinnumennskunnar eftir sumarið.
Alex Þór Hauksson (Stjarnan) - Sautján ára hefur hann spilað eins og kóngur á miðju Stjörnunnar. Framtíðarfyrirliði og fótboltaheili sem gengur undir gælunafninu Kante í Garðabænum.
Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík) - Það vilja öll lið bæta við sig manni sem kann að skora mörk. Þrátt fyrir að vera orðinn 26 ára hljóta félög að horfa til hans. Samningslaus eftir tímabilið.
Anton Ari Einarsson (Valur) - 23 ára markvörður Valsmanna hefur tekið miklum framförum og verið öryggið uppmálað. Gummi Hreiðars markvarðaþjálfari landsliðsins segir að Anton sé atvinnumannaefni.
Ásgeir Sigurgeirsson (KA) - Húsvíkingurinn metnaðarfulli er í U21-landsliðinu og hefur verið flottur í Pepsi í sumar.
Böðvar Böðvarsson (FH) - Fór til Midtjylland á láni í fyrra. Hefur sannað sig sem einn besti bakvörður Pepsi-deildarinnar og Evrópumörkin hans tvö gegn Braga ættu ekki að skemma fyrir möguleikum hans.
Felix Örn Friðriksson (ÍBV) - 18 ára nútíma bakvörður sem tekur virkan þátt í sóknarleiknum. Byrjaði síðasta U21-landsleik þrátt fyrir ungan aldur.
Gísli Eyjólfsson (Breiðablik) - Þessi 23 ára miðjumaður er ljósasti punktur Blikaliðsins í sumar. Langar í atvinnumennskuna og Milos þjálfari hans segir að hann geti náð langt.
Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan) - Eiginlega rannsóknarefni af hverju Hilmar er ekki kominn út? Frábær fótboltamaður sem er með baneitruð föst leikatriði.
Hólmbert Aron Friðjónsson (Stjarnan) - Það er mikill áhugi á þessum hávaxna sóknarmanni. Með reynslu eftir dvöl í Skotlandi og Noregi og líklegt að hann verði ekki í Stjörnubúningnum næsta sumar.
Athugasemdir