Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. mars 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Miðasala á HM - Leiðbeiningar um skipti og sölu á miðum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
FIFA hefur gefið út leiðbeiningar til þeirra miðaeigenda sem hafa hug á að skipta um nöfn á miðum sem þeir hafa keypt eða selja þá.

Breytingar á miðum
Miðaeigandi getur ekki flutt sinn eigin miða, en hann getur breytt um „gesti“. Ef þú hefur keypt fjóra miða getur þú því breytt um nöfn á hinum þremur miðunum.

Hægt verður að breyta miðunum á þennan hátt frá og með 18. apríl klukkan 09:00 að íslenskum tíma þangað til þremur dögum fyrir þann leik sem miðann er á.

Endursala miða
Ef miðakaupandi hefur ekki tök á því að nota alla miðana sína sem hann hefur keypt verður hægt að selja þá á endursölumarkaði hjá FIFA.

Það er þó ekki hægt að tryggja það að annar aðili kaupi miðann. Því hvetur FIFA miðaeigendur til að fylgjast reglulega með endursölukerfinu.

Ekki er mögulegt fyrir miðakaupanda að selja aðeins sinn eigin miða og halda eftir „gestamiðunum“.

Endursölukerfið opnar þann 18. apríl klukkan 09:00 að íslenskum tíma.
Af vef KSÍ.
Frekari upplýsingar má finna í frétt FIFA
Athugasemdir
banner
banner