Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. febrúar 2017 06:00
Þorsteinn Haukur Harðarson
Diarra farinn frá Marseille
Diarra er farinn frá Marseille.
Diarra er farinn frá Marseille.
Mynd: Getty Images
Franski knattspyrnumaðurinn Lassana Diarra er hættur hjá franska liðinu Marseille en félagið greindi frá því að samkomulag hafi náðst um að rifta samningi leikmannsins.

Diarra hefur verið hjá Marseille í hálft annað ár en á litríkum ferli sínum hefur hann einnig spilað með Chelsea, Arsenal og Real Madrid.

Hann gekk til liðs við Marseille frá rússneska liðinu Lokomotiv Moskva árið 2015.

Nú er hann sterklega orðaður við lið í kínversku ofurdeildinni og því líklegt að hann bætist við hóp þekktra leikmanna í boltanum þar í landi áður en langt um líður.
Athugasemdir
banner
banner