Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. desember 2017 10:15
Elvar Geir Magnússon
Bein Twitter lýsing - Indónesíuhópurinn
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 11:00 er fréttamannafundur Heimis Hallgrímssonar þar sem landsliðshópurinn fyrir komandi landsleiki verður opinberaður.

Í janúar leikur Ísland tvo vináttulandsleiki gegn Indónesíu og fara þeir fram í Indónesíu 11. og 14. janúar. Leikirnir verða leiknir utan alþjóðlegra leikdaga FIFA og verður íslenski landsliðshópurinn því að mestu skipaður leikmönnum sem spila á Norðurlöndunum.

Hér að neðan verður bein Twitter lýsing frá fundinum.

Indónesía er að undirbúa U23 lið sitt fyrir Asíuleikana næsta sumar. Liðið sem leikur gegn Íslandi verður því að mestu eða öllu leyti skipað leikmönnum 23 ára og yngri.

Þetta verður í fyrsta sinn sem liðin tvö mætast en Indónesía er ekki hátt skrifað í alþjóðlegum fótbolta og situr í 154. sæti FIFA-listans. Liðið hefur þó verið að klífa upp listann síðustu tvö ár.

Bein Twitter lýsing:

Athugasemdir
banner
banner
banner