Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. júlí 2014 05:55
Daníel Freyr Jónsson
Evrópudeildin: FH og Stjarnan spila ytra
FH og Stjarnan spila í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
FH og Stjarnan spila í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH og Stjarnan mæta í kvöld andstæðingum sínum í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

FH ferðast til Hvíta-Rússlands og mætir þar Neman, á meðan ferðalag Stjörnunar var öllu styttra. Garðbæingar leika gegn Motherwell frá Skotlandi.

FH komst áfram úr 1. umferð á kostnað Glenavon frá Norður-Írlandi, á meðan Stjarnan sló út welska liðið Bangor City.

Um er að ræða fyrri leiki liðana áður en þau mætast að nýju eftir viku.

Forkeppni Evrópudeildarinnar:
17:00 Neman - FH
18:45 Motherwell - Stjarnan
Athugasemdir
banner
banner
banner