Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   mið 17. september 2014 20:05
Mist Rúnarsdóttir
Arna Sif: Ákváðum að enda á flugeldasýningu
Arna Sif var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og þakkaði fyrir með marki
Arna Sif var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og þakkaði fyrir með marki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við ákváðum í dag að enda þetta á flugeldasýningu og við stóðum við það,“ sagði Arna Sif Ásgrímsdóttir eftir 9-1 sigur á Serbíu. Arna Sif lék í hjarta varnarinnar í dag en hún var í byrjunarliði Íslands fyrsta skipti.

Það var allt annað að sjá til Íslands frá því í leiknum gegn Ísrael á laugardag og Arna Sif segir að íslensku stúlkurnar hafi verið staðráðnar í að bæta sig.

„Við fórum ótrúlega vel yfir það eftir Ísraelsleikinn. Við vorum ósátt með nýtinguna og vorum staðráðin í að bæta þetta, ákvarðanatöku á síðasta þriðjungi og við gerðum það ótrúlega vel og það gekk allt upp í dag.“

Arna Sif hefur verið í kringum landsliðshópinn en fékk í dag tækifæri í byrjunarliðinu í fyrsta skipti. Hún segist hafa stefnt að því lengi.

„Þetta er náttúrulega það sem maður er búinn að vera að stefna að frá því að maður var lítil stelpa þannig að loksins. Þetta er draumur og þetta var ógeðslega gaman.“

Báðir miðverðirnir, Arna Sif og Glódís Perla, skoruðu í dag og mörk þeirra voru jafnframt fyrstu landsliðsmörk beggja. Þær stöllur voru þekktar fyrir markaskorun í yngri flokkunum og það var gaman að sjá þær komast á blað í kvöld.

„Það var ótrúlega skemmtilegt. Ég var búin að ákveða í morgun að ég ætlaði að skora þannig að það var mjög skemmtilegt. Við Glódís leynum á okkur í sókninni. Maður var þarna í yngri flokkunum, fremstur, þannig að maður kann þetta alveg.“

Nánar er rætt við Örnu Sif í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner